fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Rannsaka dularfullt hvarf ungs manns

Pressan
Þriðjudaginn 19. mars 2024 09:56

Riley Strain er 22 ára.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan hefur undanfarna tíu daga leitað að 22 ára háskólanema sem hvarf sporlaust eftir að hafa heimsótt bar í miðborg Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum.

Hvarf unga mannsins, Riley Strain, hefur fengið talsverða fjölmiðlaumfjöllun í Bandaríkjunum síðustu daga.

Hann var staddur í Nashville ásamt hópi vina við University of Missouri þegar hópurinn heimsótti barinn Luke‘s 32 Bridge. Þar keypti Riley sér meðal annars áfengi en eitthvað varð til þess að honum var vísað út af barnum klukkan 21:38 að kvöldi 8. mars – líklega vegna ölvunar.

Riley varð á vegi lögregluþjóns í Nashville skömmu eftir að hann yfirgaf barinn og birti lögregla upptöku úr búkmyndavél þar sem Riley sést eiga í stuttum samskiptum við lögregluþjóninn.

Lögregluþjónninn var á svæðinu vegna tilkynningar um innbrot í bíl og kemur fram í yfirlýsingu lögreglu að Riley hafi virkað eðlilegur og ekkert hafi bent til þess að hann væri í einhvers konar vandræðum. Lögregluþjónninn spurði Riley hvernig hann hefði það og svaraði hann því til að hann hefði það ágætt. Spurði hann lögregluþjóninn að því sama áður en Riley hélt sína leið.

Greiðslukort Riley fannst daginn eftir að hann hvarf, ekki ýkja langt frá staðnum þar sem hann sást síðast á.

Leit lögreglu undanfarna daga hefur beinst að á skammt frá en ekkert hefur fundist sem gefur til kynna að hann hafi endað þar. Aðstandendur hans óttast að einhver hafi unnið honum mein en lögregla segist ekki hafa neinar vísbendingar um að það hafi gerst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu