fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Graðir íþróttamenn fá 300.000 smokka en ekkert kampavín

Pressan
Mánudaginn 18. mars 2024 07:00

Það verður nóg af smokkum fyrir alla.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í sumar fara Ólympíuleikarnir fram í borg ástarinnar, París. Mótshaldarar ætla að dreifa 300.000 smokkum í Ólympíuþorpinu svo keppnisfólkið geti stundað bólfimi á milli þess sem það keppir.

Sky News hefur eftir mótshöldurunum að þeir vonist til að þar sem heimsfaraldur kórónuveirunnar og tilheyrandi sóttvarnaaðgerðir eru nú að baki þá geti keppnisfólkið stundað ástarleiki ef því sýnist svo.

Um 9.000 íþróttamenn munu búa í Ólympíuþorpinu. Rúmin í því eru hönnuð til að bera 250 kg, svo það ætti að vera svigrúm fyrir fleiri en einn til að koma sér fyrir í þeim. 300.000 smokkar fyrir 9.000 keppendur þýða að hver keppandi getur fengið tæplega tvo smokka á dag á meðan leikarnir standa yfir.

Vel verður séð um keppendurna og munu þeir fá góðan og næringarríkan mat en kampavín verður ekki á boðstólum en keppendurnir geta auðvitað fengið sér kampavín utan Ólympíuþorpsins. Boðið verður upp á glæsilegt hlaðborð þar sem keppendur geta valið sér mat af 350 metra löngu borði.

Ólympíuþorpið er dýrasta einstaka framkvæmdin vegna leikanna en kostnaðurinn við það er tveir milljarðar evra. Það er á stærð við 70 fótboltavelli og stendur beggja megin við Signu en brú tengir það saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig