fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Fílar hafa sína eigin útfararsiði

Pressan
Laugardaginn 16. mars 2024 09:30

Mynd úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo virðist sem asískir fílar hafi sína eigin útfararsiði þegar þeir grafa kálfa sína. Þeir koma kálfunum fyrir í holum þannig að fætur þeirra vísa upp á við og síðan þekja þeir skrokk þeirra með jarðvegi.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem var nýlega birt í vísindaritinu Journal of Threatened Taxa. Í henni skýra rannsóknarhöfundarnir frá fimm tilfellum jarðsetninga á kálfum í Vestur-Bengal á Indlandi.

Kálfarnir voru allir eins árs eða yngri þegar þeir drápust. Fílarnir fluttu þá á fyrirframgerða jarðsetningarstaði á teræktunarsvæðum. Þar var þeim komið fyrir í holum, fæturnir látnir vísa upp á við, og jarðvegi mokað yfir.

Vísindamenn höfðu áður séð að afrískir fílar hafa ákveðna útfararsiði. Hjarðirnar hylja skrokka látinna ættingja og félaga með trjágreinum og laufum.

Nýja rannsóknin er sú fyrsta sem snýr að asískum fílum og um leið fyrsta þekkta dæmið um að fílar jarðsetji aðra fíla í holum og að þeir láti skrokk þeirra snúa á ákveðinn hátt.

Live Science hefur eftir Parveen Kaswan, og Akashdeep Roy, sem unnu að rannsókninni, að jarðsetningar kálfanna séu mjög vel skipulagðar og að fílarnir viti vel hvað þeir séu að gera.

Krufning á hræjum kálfanna leiddi í ljós að þeir drápust allir af náttúrulegum orsökum, öndunarfærasýkingum eða öðrum sýkingum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig