fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Varpaði ljósi á fólskulegt ofbeldi eiginkonunnar með hjálp öryggismyndavélar

Pressan
Föstudaginn 15. mars 2024 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndbönd sem sýna fólskulegt ofbeldi sem Richard Spencer varð fyrir á heimili sínu af hendi eiginkonu sinnar, Sheree Spencer, verða sýnd í heimildaþætti Channel 5 á mánudag.

Talsvert var fjallað um málið í breskum fjölmiðlum í fyrra en Sheree var dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að pynta eiginmann sinn. Ofbeldið hafði staðið yfir árum saman en Sheree neitaði ávallt sök – uns hún gat það ekki lengur vegna óyggjandi sannanna.

Richard hafði nefnilega komið fyrir eftirlitsmyndavél á heimili þeirra í Bubwith á Englandi sem sýndi svart á hvítu það ofbeldi sem hann varð fyrir. Í þættinum, My Wife, My Abuser: The Secret Footage, eru einnig sýndar upptökur úr yfirheyrslum hjá lögreglu þar sem Sheree sagði að eiginmaðurinn væri sá sem beitti ofbeldinu.

Kúkaði á gólfið

Sláandi upplýsingar koma fram í þættinum, meðal annars kúkaði Sheree einu sinni á gólfið og neyddi eiginmanninn til að þrífa upp eftir hana. Þá barði hún hann í höfuðið með vínflösku með þeim afleiðingum að hann hlaut varanlegan skaða af. Þetta gekk á lengi og beitti hún bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi þar sem hún barði frá sér og beit.

Í umfjöllun Mail Online kemur fram að Sherre hafi reynt ýmislegt til að koma í veg fyrir að þátturinn færi í loftið. Á sama tíma vildi Richard gjarnan að hann yrði sýndur til að varpa ljósi á að karlar geta líka orðið fyrir heimilisofbeldi þar sem konur eru gerendur.

„Sýningu myndarinnar hefur verið frestað í sex mánuði vegna lagalegra úrlausnarefna en ég vona að henni verði vel tekið,“ segir hann við Mail Online.

Kynntust árið 2000

Richard og Sheree kynntust á næturklúbbi árið 2000 og urðu fljótt ástfangin. Þau gengu í hjónaband árið 2009 og eignuðust sitt fyrsta barn árið 2015. Ekki löngu eftir að þau byrjuðu saman fór að bera á ofbeldisfullri hegðun Sheree og ákvað Richard að nota öryggismyndavél, sem hann hafði upphaflega keypt til að geta fylgst með dóttur, til að ná ofbeldinu á myndband.

Sheree var handtekin árið 2021 eftir að áhyggjufullur starfsmaður velferðarsviðs í Bubwith hafði samband við lögreglu. Hún var færð í opið úrræði eftir aðeins sex mánaða afplánun og það er eitthvað sem Richard er ósáttur við. „Dómarinn í málinu lýsti því að þetta væri eitt versta heimilisofbeldismál sem hann hefði séð. Í ljósi þess skil ég ekki hvernig á því stendur að hún sé komin í opið úrræði strax.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig