fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Pressan

Grimmileg barnæska mannsins sem grunaður er um morðið á Madeleine McCann

Pressan
Fimmtudaginn 14. mars 2024 22:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðverjinn Christian Brueckner liggur undir grun um að hafa numið Madeleine McCann á brott af sumarleyfisstað fjölskyldu hennar í Praia da Luz í Portúgal vorið 2007. Brueckner er dæmdur nauðgari og situr nú í fangelsi fyrir að nauðga bandarískri konu. Á dögunum hófust réttarhöld yfir honum vegna fleiri mála sem varða þrjár nauðganir og tvö brot gegn börnum.

Christian var opinberaður árið 2020 sem hinn grunaði í hvarfi Madeleine og eru saksóknarar vissir um að hann beri ábyrgð á hvarfi og dauða hennar. Lögreglu virðist þó skorta bein sönnunargögn til að geta ákært hann.

Breska blaðið Daily Star varpaði á dögunum ljósi á þennan 47 ára Þjóðverja sem átti býsna erfiða æsku. Byggist umfjöllunin að hluta úr bókinni My Search for Madeleine þar sem höfundurinn Jon Clarke lagðist í rannsóknarvinnu um uppvaxtarár Brueckner.

Fór ungur í fóstur

Brueckner fæddist í Wurzburg árið 1976 og var enn ungbarn þegar honum var komið fyrir í fóstri ásamt bróður sínum eftir að líffræðileg móðir hans yfirgaf þá bræður.

Fósturforeldrar þeirra bræðra, Brigitte og Fritz, höfðu slæmt orð á sér og hafa nágrannar þeirra lýst því að drengirnir hafi verið læstir inni í myrkruðu herbergi tímunum saman og þeir beittir líkamlegu og andlegu ofbeldi. Þeir hafi verið niðurlægðir með ljótum orðum sem beindust meðal annars að foreldrum þeirra, sem að sögn fósturforeldranna voru „glæpamaður og hóra“.

Í bók Clarke kemur fram að Brueckner hafi verið laminn með belti og Brigitte réttlætt mannvonsku sína með þeim orðum að fósturbörn og börn frá brotnum heimilum þyrfti að siða til og aga. Fritz er sagður hafa flengt Brueckner á beran rassinn og hótað því að halda áfram ef hann myndi fara að gráta. Í bókinni kom fram að komið hefði verið fram við hans eins og skepnu og hann ekki fengið vatn þegar hann var þyrstur eða mat þegar hann var svangur.

Misnotaði sex ára stúlku á leikvelli

Fimmtán ára gamall var hann fluttur á sérstakt heimili fyrir vandræðaunglinga en ekki löngu síðar fór að bera á afbrigðilegri kynferðislegri hegðun hans.

Sautján ára gamall var hann sakfelldur fyrir að misnota sex ára stúlku á leikvelli og nokkrum dögum áður en réttarhöldin hófust beraði hann sig fyrir framan börn. Hann hlaut tveggja ára dóm og var gert að afplána dóminn á heimili fyrir unga afbrotamenn.

Eftir að hafa lokið þeirri afplánun byrjaði Brueckner að ferðast og kom hann fyrst til Portúgals árið 1995 þar sem hann hélt áfram að brjóta lögin. Samhliða afbrotum sinnti hann allskonar vinnu; hann lagði stund á nám í bifvélavirkjun og tók að sér vaktir á veitingastöðum og börum þar sem hann þjónaði til borðs. Hann framfleytti sér einnig með innbrotum og fíkniefnasölu.

Tíu árum eftir að hann flutti til Portúgals nauðgaði hann 72 ára bandarískri konu. Brotið framdi hann í september 2005, eða einu og hálfu ári áður en Madeleine McCann hvarf. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir brotið og afplánar hann þann dóm þessa dagana í fangelsinu í þýsku borginni Oldenburg.

Saksóknarar eru sagðir vinna að því sleitulaust að finna upplýsingar sem geta varpað ljósi á sekt hins 47 ára Þjóðverja. Hvort það tekst verður tíminn að leiða í ljós.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“

Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu