fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Pressan

Svarti sauðurinn í norsku konungsfjölskyldunni: Hnífur í vegg og ásakanir um heimilisofbeldi

Pressan
Þriðjudaginn 13. ágúst 2024 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norska konungsfjölskyldan stendur frammi fyrir erfiðu máli eftir að stjúpsonur Hákonar krónprins var handtekinn vegna gruns um ofbeldi gegn kærustu sinni um þar síðustu helgi. Marius Borg Høiby, 27 ára sonur Mette-Marit úr fyrra sambandi, var handtekinn eftir að málið var tilkynnt.

Til að byrja með voru litlar upplýsingar birtar og í norskum fjölmiðlum talað um líkamsárás, skemmdarverk og deilur á milli Mariusar og annarrar konu í íbúð. Nú hefur Se og Hør í Noregi birt myndir úr íbúðinni sem sýna meðal annars skemmdir á innanstokksmunum og hníf sem búið er að stinga í vegg.

Þar sem Marius er aðeins stjúpsonur Hákonar gegnir hann ekki konunglegum skyldum og er ekki í erfðaröð krúnunnar. Málið hefur þó valdið titringi innan fjölskyldunnar og segir breska blaðið The Times að Marius gæti átt yfir höfði sér eins árs fangelsi vegna málsins.

Marius átti í ástarsambandi við stúlkuna sem hann er grunaður um að hafa ráðist á, en þau höfðu verið saman um skamma hríð. Er hann meðal annars sagður hafa hótað því að kveikja í fötum hennar.

Eftir að birtar voru fréttir um meint heimilisofbeldi Mariusar steig önnur fyrrverandi kærasta hans fram, Juliane Snakkestad, og lýsti því að hún hefði orðið fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi meðan á sambandinu stóð.

Norska ríkisútvarpið, NRK, greindi frá því á dögunum að lögregla hefði meðal annars lagt hald á hníf við rannsókn málsins en ekki liggur fyrir hvort það sé hnífurinn sem sést á forsíðu Se og Hør. Ekki leikur þó grunur á að Marius hafi beitt hnífnum gegn kærustu sinni.

VG segir frá því í morgun að Marius sé grunaður um að hafa slegið til konunnar og tekið hana kyrkingartaki. Þá er hann sagður hafa hótað henni símleiðis. Hákon krónprins hefur tjáð sig lítillega um málið en það gerði hann þegar hann heimsótti Ólympíuleikanna í síðustu viku. Sagði Hákon að það væri alltaf alvarlegt ef lögregla væri með mál til rannsóknar. Hann taldi þó ekki rétt að úttala sig nánar um málið á þeim tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Banaslys í Mosfellsbæ

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Laundóttir Pútíns stöðvuð í París: „Fyrir þremur vikum drap faðir þinn bróður minn“

Laundóttir Pútíns stöðvuð í París: „Fyrir þremur vikum drap faðir þinn bróður minn“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hjónin lifðu í miklum lúxus í Dúbaí: Myrt á hrottalegan hátt eftir misheppnaða fjárkúgun

Hjónin lifðu í miklum lúxus í Dúbaí: Myrt á hrottalegan hátt eftir misheppnaða fjárkúgun
Pressan
Fyrir 6 dögum

Leikstjóri fékk milljarða frá Netflix til að gera þætti – Er nú sakaður um að hafa farið á stórbrotið eyðslufyllerí í staðinn

Leikstjóri fékk milljarða frá Netflix til að gera þætti – Er nú sakaður um að hafa farið á stórbrotið eyðslufyllerí í staðinn
Pressan
Fyrir 6 dögum

Kjörinn fulltrúi Repúblikana sökuð um að hafa rænt unglingsdóttur kollega eftir að hann neitaði að sofa hjá henni

Kjörinn fulltrúi Repúblikana sökuð um að hafa rænt unglingsdóttur kollega eftir að hann neitaði að sofa hjá henni