Árið 2007 hafði John Galvan setið saklaus í fangelsi í rúma tvo áratugi og var búinn að gefa upp alla von um frelsi. Fyrir tilviljun festist hann í endursýndum sjónvarpsþætti af Mythbusters, þar sem reynt er að komast að því hvort ýmsar fullyrðingar séu sannar eða ósannar. Þátturinn gjörsamlega heltók Galvan enda var í honum reynt að sannreyna hvort að hægt væri að kveikja í polli af bensíni með því að henda í hann logandi sígarettu. Slíkt hefur oft verið gert í hinum ýmsu bíómyndum en þrátt fyrir margar tilraunir tókst þáttastjórnendum það ekki og kváðu því upp þann úrskurð sinn að þetta væri einfaldlega ekki hægt hvað sem Hollywood liði.
Á einu augabragði fylltist Galvan nýrri von. Ástæðan var sú að í játningu, sem hann hafði verið neyddur til að skrifa undir sem ungur maður af óvinveittum lögreglumönnum, var fullyrt að það væri nákvæmlega það sem hann hafði gert sekur um.
Árið 1986 var Galvan dæmdur í lífstíðarfangelsi ásamt tveimur félögum sínum sem voru þá allir 18-22 ára gamlir. Áttu þeir að hafa gerst sekir um íkveikju í íbúðarhúsnæði sem leiddi til dauða tveggja ungra manna. Nágrannakona, sem var upphaflega grunuð um glæpinn, fullyrti að þremenningarnir hefðu gerst sekir um glæpinn og voru þeir handteknir í kjölfarið.
Í yfirheyrslum lögreglunnar voru piltarnir beittir miklu harðræði og að endingu brotnuðu þeir niður og skrifuðu undir áðurnefndar játningar gegn því að fá að fara heim til sín. Það reyndist vera lygi og piltarnir voru nokkru síðar dæmdir í lífstíðarfangelsi og hófu afplánun dómanna.
Eins og gefur að skilja varð Galvan æstur við að sjá þáttinn og hafði þegar samband við lögfræðing sinn. Málið komst loksins á smá skrið en þó liðu fimmtán ár þangað til málið var loks endurupptekið og úrskurðað var að Galvan og félagar hans hefðu setið saklausir í fangelsi í tæp 36 ár.