BBC skýrir frá þessu og segir að í kjölfar gagnrýni á þetta hafi leiðtogar samfélagsins sagt að fólk skilji ekki siði þess og venjur.
Lágmarksaldur til að ganga í hjónaband í Gana er 18 ár. Það hefur dregið mjög úr því að börn séu neydd í hjónaband þar í landi en það gerist þó enn eins og þetta nýja mál sýnir.
Samkvæmt tölum frá samtökunum NGO Girls Not Brides, sem berjast gegn því að barnungar stúlkur séu neyddar í hjónaband, þá eru 19% stúlkna í Gana neyddar í hjónaband áður en þær ná 18 ára aldri og 5% áður en þær ná 15 ára aldri.
Myndböndum og myndum frá athöfninni á laugardaginn hefur verið dreift mikið á samfélagsmiðlum. Á þeim sést að tugir af leiðtogum samfélagsins voru viðstaddir athöfnina og hefur það vakið mikla reiði margra Ganabúa.
Í athöfninni hélt kona ein ræðu og sagði stúlkunni að klæðast ögrandi fyrir eiginmann sinn. Einnig heyrist að konur veita stúlkunni ráð um „eiginkonuskyldur“ og hvernig hún eigi að nota ilmvatn til að auka kynferðislega löngun eiginmannsins.
Þetta hefur ekki orðið til að draga úr reiði fólks. Margir hafa krafist þess að yfirvöld ógildi hjónabandið og rannsaki framferði Tsuru.
Leiðtogar samfélags Nungua fólksins, sem eru frumbyggjar, hafa gagnrýnt reiði fólks vegna hjónabandsins og segja hana tilkomna vegna „fáfræði“. Bæði Tsuru og stúlkan tilheyra samfélagi Nungua fólksins.