En þegar mörg þúsund bílkaupendur biðu spenntir eftir bílum sínum í aðdraganda jólanna var skipinu, sem flutti þá, snúið við þegar það var statt undan strönd Brisbane og sent aftur til Kína.
En af hverju var skipinu snúið við? Jú, það var vegna skordýrs sem heitir „yellow-spotted stink bug“ á ensku.
Skipið, sem heitir Glovis Caravel, kom að strönd Brisbane seint í október. Það getur flutt 6.500 ökutæki. Um borð voru meðal annars bílar frá Tesla og Kia hefur staðfest að um 1.000 bílar frá fyrirtækinu hafi verið um borð.
En áður en skipið lagðist að bryggju kom í ljós að nokkur skordýr af fyrrgreindri tegund leyndust í því. Áströlsk yfirvöld vildu því ekki leyfa skipinu að leggjast að bryggju því þessi skordýrategund er mikil ógn við plöntulíf í landinu og gæti valdið miklu tjóni á landbúnaðarafurðum, ávöxtum og fleiru. The Guardian skýrir frá þessu.
Skipinu var siglt til Shanghai í Kína þar sem bílarnir voru teknir úr því.
Þetta hafði töluverð áhrif á sölu Tesla í Ástralíu sem seldi 1.351 bíla í desember en í nóvember seldust 3.157.
Í heildina seldust 87.217 rafbílar í landinu á síðasta ári, rúmlega tvöfalt fleiri en árið áður, og segja rafbílasamtökin að málið hafi haft áhrif á allan ástralska markaðinn. Rúmlega 100.000 bílar hefðu selst ef skipinu hefði ekki verið snúið við.