fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Hörð átök öfgavinstrimanna og lögreglu í Leipzig – Ósáttir við dóm yfir konu sem réðst á nýnasista

Pressan
Föstudaginn 9. júní 2023 09:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Til harðra átaka kom á milli lögreglu og öfgavinstrimanna í Leipzig í Þýskalandi á laugardagskvöldið. Öfgavinstrimenn söfnuðust þá saman til að mótmæla dómum yfir nokkrum aðilum sem höfðu verið fundnir sekir um árásir á nýnasista.

Dómstóll í Dresden sakfelldi í síðustu viku fjóra aðgerðasinna úr röðum vinstrimanna fyrir árásir á nýnasista. Meðal hinna dæmdu er Lina E, sem er vel þekkt í Þýskalandi, sem var dæmd í fimm ára fangelsi. Dómarnir voru á bilinu tveggja til fimm ára fangelsi.

Öfgavinstrimenn söfnuðust saman í Leipzig á laugardagskvöldið til að mótmæla dómunum en Lina E. er frá Leipzig.

Lögreglan lagði bann við mótmælunum en mótmælendur höfðu það bann að engu og söfnuðust saman.

Lögreglan reyndi í fyrstu að koma til móts við mótmælendur og leyfa þeim að mótmæla en þegar þeir gripu til ofbeldis og réðust á lögreglumenn svaraði lögreglan af hörku og voru fimm handteknir. Um 50 lögreglumenn slösuðust í átökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla að leggja 1.200 störf niður hjá CIA

Ætla að leggja 1.200 störf niður hjá CIA
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið

Sturluðustu færslunar sem Hvíta húsið hefur birt undanfarið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf

Tveggja barna móðir fannst heil á húfi 63 árum eftir að hún hvarf