fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Móðir 5 ára stúlku handtekin eftir að líkamsleifar fundust á heimili hennar

Pressan
Fimmtudaginn 8. júní 2023 04:15

Maha Li Hobbs. Mynd:COLORADO BUREAU OF INVESTIGATION

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku var Alexus Tanielle Nelson handtekin eftir að líkamsleifar 5 ára dóttur hennar fundust á heimili hennar.

Nelson býr í Colorado í Texas. People segir að hún sé grunuð um misþyrmingar á barni sem hafi leitt til dauða þess, vanvirðandi meðferð líks og að hafa reynt að spilla sönnunargögnum.

Líkamsleifar stúlkunnar, sem hét Maha Li Hobbs, fundust inni í skáp.

Lögreglan var send á heimilið eftir að móðir Nelson hafði tilkynnt að hún hefði fengið „áhyggjuvekjandi yfirlýsingar“ í textaskilaboðum frá henni. Hún sagðist einnig hafa áhyggjur af velferð dótturdóttur sinnar.

Þegar lögreglan kom heim til Nelson, sem er 27 ára, sagði hún að hún hefði gefið dóttur sína til ættleiðingar en gat ekki sýnt nein skjöl því til staðfestingar. Hún var því handtekin vegna rannsóknar málsins.  Í kjölfarið gerði lögreglan leit á heimili hennar og fann þá líkamsleifarnar inni í skáp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims
Pressan
Í gær

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn
Pressan
Í gær

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa