Í umfjöllun The Conversation kemur fram að undan ströndum Suður-Afríku búi mikill fjöldi hvíthákarla, einn sá mesti í heiminum. En vísindamenn hafa tekið eftir að hákörlunum hefur fækkað undan Western Cape en þangað sækja dýrin til að komast í fæðu, hitta aðra hvíthákarla eða til að hvílast.
Árið 2011 sáust rúmlega 300 hvíthákarlar á þessu svæði en síðan 2019 hefur ekki einn einasti sést og hefur það vakið upp áhyggjur af stöðu stofnsins. Mikilvægt er að vernda tegundina því hún gegnir mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar. Þetta eru rándýr á toppi fæðukeðjunnar og þau hjálpa til við að tryggja jafnvægi vistkerfisins.
Sjávarlíffræðingar vildu vita af hverju hákarlarnir hurfu frá svæðinu og hvort það þýddi að hvíthákörlum hefði fækkað alls staðar við strendur Suður-Afríku eða hvort þeir hefðu einfaldlega flutt sig um set.
Margir þættir voru rannsakaði en að lokum komust sjávarlíffræðingarnir að því að háhyrningar höfðu komist á bragðið eftir að hafa komist í hákarlalifur. Hafa háhyrningar því veitt hvíthákarla og fleiri hákarlategundir sér til matar.
Fyrstu dæmin um þetta eru frá 2015.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að hvíthákarlarnir hafi flúið frá Western Cape vegna tveggja háhyrninga sem herjuðu á þá.
Svipað dæmi kom upp nýlega í Mossel Bay þar sem hópur háhyrninga drap að minnsta kosti þrjá hvíthákarla. Í kjölfarið létu aðrir hvíthákarlar sig hverfa á brott.