Mörg tilfelli apabólu hafa greinst í Evrópu, Norður-Ameríku og Ástralíu síðustu daga. Veiran er landlæg víða í Afríku en hefur skotið upp kollinum utan álfunnar öðru hvoru.
Richard Pebody, yfirmaður hááhættusmitsjúkdómadeildar WHO í Evrópu, segir að gott hreinlæti og öruggt kynlíf eigi að duga til að halda aftur af útbreiðslu veirunnar. Þess utan sé ekki mikið til af bóluefnum.
Hann sagði að smitrakning og einangrun séu einnig ráðstafanir sem geti haldið aftur af útbreiðslunni. Þetta sé ekki veira sem dreifst mjög auðveldlega og hafi ekki valdið alvarlegum veikindum fram að þessu.