fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Jóakim prins og Alexandra greifynja sendu tilkynningu frá sér – „Við erum brjáluð“

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 12. maí 2022 05:59

Nikolai stendur hér á milli foreldra sinna. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóakim Danaprins og fyrrum eiginkona hans, Alexandra greifynja, rufu í gær þögn sína um málefni Herlufsholm einkaskólans. Skólinn hefur verið mikið í fréttum í Danmörku að undanförnu eftir sýningu heimildarmyndar TV2 um skólann. Í henni kemur fram að margvíslegt ofbeldi hafi þrifist þar áratugum saman. Meðal nemenda í skólanum er Christian prins, elsti sonur Friðrik krónprins og Mary krónprinsessu.

Krónprinshjónin sendu frá sér yfirlýsingu í síðustu viku vegna málsins en margir fjölmiðlar höfðu velt því upp hvort það sé við hæfi að verðandi þjóðhöfðingi stundi nám við skólann í ljósi þess sem hefur komið fram að undanförnu.

Hneykslismál skekur dönsku yfirstéttina – Krónprinshjónunum er illa brugðið

Í gær var síðan röðin komin að Jóakim og Alexöndru greifynju að senda frá sér tilkynningu vegna málsins. Eldri sonur þeirra, Nikolai prins, stundaði nám við skólann fyrir nokkrum árum.

Í viðtali við Klaus Eusebius, sem var vikið úr starfi skólastjóra fyrir nokkrum dögum, á TV2 í vikunni sagði hann að Nikolai hafi verið vísað tímabundið úr skólanum á sínum tíma vegna brots á reglum skólans um áfengisneyslu.

Það voru þessi ummæli skólastjórans fyrrverandi sem Jóakim og Alexandra brugðust við í gær.

„Sem foreldrar fyrrum nemanda við Herlufsholm þá erum við – svo það sé sagt á góðri dönsku – brjáluð yfir að sjá að sonur okkar er nafngreindur opinberlega af Klaus Eusebius Jakobsen, fyrrum skólastjóra,“ segir í tilkynningu þeirra.

Þau segja síðan að Eusebius hafi brugðist trausti og trúnaði við Nikolai og ekki megi nota brot Nikolai og þá refsingu sem hann hlaut til að beina athyglinni frá þeim alvarlegu atburðum sem skýrt hefur verið frá að undanförnu.

Það var í viðtali við TV2 á sunnudaginn sem Eusebius sagði að ekki væri gerður greinarmunur á nemendum skólans eftir stöðu þeirra og í því sambandi kom nafn Nikolai prins upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað

Unglingur dæmdur í ævilangt fangelsi – Stakk ellilífeyrisþega í hjartað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta

Konur lýstu hegðun hans á Facebook – Nú krefst hann bóta
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð

Blaðamaðurinn Terry Anderson látinn – Gekk í gegnum margra ára martröð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Fyrir 4 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða