Óhugnanlegur atburður átti sér stað yfir kínversku borginni Zhoushan í nágrenni Shanghai um helgina. Þar varð næturhimininn eldrauður á litinn.
Myndir og myndbönd af atvikinu hafa gengið um á samfélagsmiðlum undanfarna daga og töldu margir að þarna væri komið merki um að endalokin væru í nánd. Á myndböndum má heyra börn segja við foreldra sína. „Ég er hrætt“.
Himininn varð rauður klukkustundum saman á laugardaginn, 7. maí, og gengur myndbönd af fyrirbærinu um á kínverska samfélagsmiðlinum Douyin, sem svipar til TikTok.
„Þetta er blóðrauður litur, það lítur alls ekki vel út,“ skrifar einn í athugasemdum. „Það verða jarðskjálftar eftir viku, það er ekki eðlilegt að sjá himininn verða rauðan,“ skrifar annar. „Dómsdagur er í nánd,“ skrifar sá þriðji.
Aðrir reyndu að sjá björtu hliðarnar og töldu rauða litinn geta merkt heilsu, heppni og velsæld.
Yfirvöld í Zhoushan hafa gefið út að ekkert yfirnáttúrulegt hafi þarna verið á ferðinni.
„Í gær [laugardag] var mikil þoka og ský mynduðust í lítilli hæð. Þetta er fyrirbæri sem stafar af speglun,“ sagði talsmaður.
Útgerð á svæðinu hefur staðfest að þarna hafi speglast ljós frá einu af fiskiskipum þeirra, en skipin kveiki á rauðum ljósum þegar þau landa geirnefjum, sem einnig þekkjast sem makrílsbræður eða saury á ensku.
„Rauða ljósinu var varpað á vatnið og þaðan upp í himininn sem olli þessar sjónhverfingu. Þetta er mjög algeng, sérstaklega á strandsvæðum.