

BBC segir að bókin hafi verið árituð af JK Rowling, höfundi hennar, og hafi verið ein af fimmtán sem voru framleiddar sérstaklega fyrir samkeppni í tilefni af því að 15 ár voru liðin frá útgáfu fyrstu bókarinnar í bókaflokknum.
Það var Chloe Esslemont sem fékk bókina í verðlaun á sínum tíma en hún var þá 16 ára.
Bloomsbury bókaforlagið efndi til samkeppninnar 2012 og bað þátttakendur um að skrifa bréf þar sem þeir skýrðu frá af hverju þeir elskuðu bækurnar um Harry Potter. Aðeins var hægt að taka þátt með því að setja bréfin í sérstaka póstkassa í ákveðnum bókaverslunum og bókasöfnum.
Fimmtán þátttakendur fengu eintak af sérprentuðu bókinni í verðlaun og var Esslemont þeirra á meðal.
BBC hefur eftir henni að hún hafi geymt bókina uppi á lofti árum saman en hafi nú ákveðið að selja hana því peningarnir muni koma sér vel.