Bandaríska fréttakonan Sarah Harvey, sem starfar hjá CNBC, ákvað að prófa þessa aðferð og eftir því sem hún segir þá gjörbreytti það lífi hennar.
Eins og fyrr segir heitir aðferðin Kakeibo. Hún var fundin upp 1904 af konu að nafni Hani Motoko en hún er þekkt sem fyrsta japanska fréttakonan.
Í stuttu máli sagt gengur aðferðin út á að maður læri að skilja samband sitt við peninga með því að halda bókhald yfir tekjur og útgjöld.
En þvert á aðrar aðferðir þá krefst þetta ekki excelskjals eða apps, bara kúlupenna og bókar.
Ástæðan fyrir að þessi aðferð virkar er að sögn einfaldlega sú að það er ákveðin hugsun sem fylgir því að sitja og skrifa tekjurnar og útgjöldin niður.
En þetta snýst ekki bara um að skrifa því maður fer í gegnum ákveðið hugsanaferli þegar maður stendur í búðinni og er að fara að kaupa eitthvað.
Því á maður, samkvæmt aðferðinni, að spyrja sig nokkurra spurninga þegar maður er að fara að nota peninga.
Þær eru:
Get ég lifað án þessa hlutar?
Miðað við fjárhagsstöðu mína, hef ég efni á honum?
Mun ég nota þetta?
Hef ég pláss fyrir þetta?
Hvernig fann ég þetta? (Var það í blaði eða leiddist mér bara og ég vildi láta tímann líða?)
Hver er tilfinningastatus minn í dag? Er ég róleg(ur), afslappaður/afslöppuð, leið(ur) eða langar mig að fagna einhverju?
Hvernig er tilfinning mín yfir að kaupa hlutinn? Gleði? Æsingur? Hversu lengi mun þessi tilfinning vara?
Sarah Harvey hafði margoft reynt að ná tökum á fjármálum sínum og þeim slæma vana að kaupa ónauðsynlega hluti. En það var ekki fyrr en hún dvaldi í Japan sem henni tókst að snúa skútunni við.
Hún segir að með því að nota Kakeibo hafi hún lært að vera algjörlega hreinskilin við sjálfa sig hvað varðar langanir sínar og óskir.
Hún segir að hún sé orðin fljótari og betri í að taka rökréttar ákvarðanir varðandi útgjöldin sín eftir að hún fór að nota þessa aðferð.