fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
Pressan

Sundsprettur breyttist í martröð: Ætlaði að pissa í sjóinn en lét lífið – „Það var mikið blóð í vatninu,“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 15. júlí 2021 22:30

Samsett mynd af Marcelo Rocha Santos.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sundsprettur í sjónum endaði á hræðilegan hátt fyrir hinn 51 árs gamla Marcelo Rocha Santos. Hann ætlaði sér út í sjó til þess að pissa, en varð fyrir árás hákarls og lét lífið. Atvikið átti sér stað á laugardag við strönd á ferðamannastað í Brasilíu. New York Post greinir frá.

„Það var mikið blóð í vatninu,“ sagði sjónarvottur eftir þessa óhugnanlegu árás. Marcelo er sagður hafa verið drukkinn þegar honum varð mál að pissa. Hann og félagi hans fóru út á sjó, en sjórinn var gruggugur og því erfitt að sjá eitthvað í honum.

Félagi hans hefur sagt við fjölmiðla: „Það var ekkert klósett á ströndinni. Þannig við fórum í sjóinn til að pissa. Ég var við hliðina á honum.“

Fólk á ströndinni hafði verið varað við því að fara í sjóinn, og strandvörður hafði skipað mönnunum að koma aftur á ströndina þegar sjórinn þeim upp að mitti.

Þá réðist hákarlinn á Marcelo, og beit hann í höndina og fótinn. Strandverðinum tókst ekki að bjarga manninum, en nokkrum félögum hans tókst að draga hann á ströndina, en þar féll hann niður kylliflatur á meðan fólk horfði á í skelfingu. Einn sjónarvottur tók myndband upp af Marcelo Rocha Santos liggjandi í sandinum.

Manninum var komið á sjúkrahús og þar var hann úrskurðaður látinn. Félaginn slapp ómeiddur, en bara þeir tveir höfðu verið í sjónum.

Ekki er víst hverskonar hákarl réðst á Marcelo, en talið er að það hafi annað hvort verið tígris- eða nautháfur. Slysið átti sér stað nálægt svæði sem er þekkt fyrir hákarlaárásir, en vitað er um allavega tólf slíkar. Þá eru hákarlaárásir sérstaklega algengar á þessum tíma árs í Brasilíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Garner aftur til United?
Pressan
Fyrir 4 dögum

19 ára piltur sagður hafa skipulagt morð foreldra sinna í marga mánuði

19 ára piltur sagður hafa skipulagt morð foreldra sinna í marga mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ekki batnar það hjá fyrrverandi prinsinum – Nýjar ásakanir gegn Andrési í Epstein-skjölunum

Ekki batnar það hjá fyrrverandi prinsinum – Nýjar ásakanir gegn Andrési í Epstein-skjölunum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tónlistarkonan lofsöng Trump og sagði hann fyrirmynd fyrir unga karlmenn

Tónlistarkonan lofsöng Trump og sagði hann fyrirmynd fyrir unga karlmenn
Pressan
Fyrir 6 dögum

Aðgerðahópur dulbúinn sem jólasveinn og álfar stálu matvörum að hætti Hróa hattar

Aðgerðahópur dulbúinn sem jólasveinn og álfar stálu matvörum að hætti Hróa hattar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Svona sá spákonan Baba Vanga fyrir sér árið 2026 – Stórtíðindi í nóvember?

Svona sá spákonan Baba Vanga fyrir sér árið 2026 – Stórtíðindi í nóvember?
Pressan
Fyrir 6 dögum

Hjónin unnu fyrst í lottóinu 2018 – Fengu sjokk á dögunum þegar þau unnu aftur

Hjónin unnu fyrst í lottóinu 2018 – Fengu sjokk á dögunum þegar þau unnu aftur
Pressan
Fyrir 1 viku

Þríeykið bar grímur og andlitsmálningu — Hófu skothríð í matvöruverslunum og drápu 28 manns

Þríeykið bar grímur og andlitsmálningu — Hófu skothríð í matvöruverslunum og drápu 28 manns
Pressan
Fyrir 1 viku

Sönnunargögnin sem komu upp um meintu hetjuna og afhúpuðu hann sem illmennið

Sönnunargögnin sem komu upp um meintu hetjuna og afhúpuðu hann sem illmennið