fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Maria lést í umferðarslysi – Faðir hennar kom fyrstur á vettvang sem sjúkraflutningamaður

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 12. september 2019 21:00

Maria Cruz. Mynd:GoFundMe

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðvikudaginn 4. september síðastliðinn var hinn reynslumikli slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður Pedro Cruz á vakt hjá slökkviliðinu í Taos sýslu í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Síðan kom tilkynning um umferðarslys, tveir bílar höfðu lent í árekstri.

Þegar Cruz kom á vettvang upplifði hann martröð allra þeirra sem sinna bráða- og neyðarþjónustu. Náinn ættingi hafði lent í slysinu, 16 ára dóttir hans Maria Elena Cruz. Hún lést í slysinu ásamt hinni þekktu kántrýsöngkonu Kylie Rae Harris.

Lögreglan segir að rannsókn hennar hafi leitt í ljós að Harris hafi ekið á bíl, sem var ekið á undan henni, á miklum hraða og hafi bíll hennar þá farið að rása á veginum. Hún missti að lokum stjórn á honum og fór bíllinn yfir á öfugan vegarhelming og lenti framan á bílnum sem Maria Elena Cruz var í.

Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu hennar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig