fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
Pressan

Svona getur þú takmarkað eyðsluna í jólamánuðinum

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 4. desember 2019 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er velþekkt að útgjöld margra verða öllu meiri í desember en ætlað er og mánuðurinn getur því orðið enn dýrari en ætlað er í upphafi. Það þarf að kaupa mat fyrir jólin, jólagjafir og svo þarf kannski að fara á jólahlaðborð og gera sér annan dagamun. En það er hægt að hafa stjórn á útgjöldunum og það á í raun ekki að vera svo erfitt.

Það er eitt og annað sem fólk getur sjálft gert til að hafa stjórn á útgjöldunum eftir því sem Samantha Barry, ritstjóri tímaritsins Glamour, sagði í samtali við CNBC. Hún segir að þetta snúist fyrst og fremst um skipulagningu. Að setjast niður og komast að því hversu miklu þú hefur efni á að eyða er fyrsta skrefið.

Útgjaldaliði á borð við jólahlaðborð og jólagjafir er erfitt að eiga við og af þeim sökum er snjallt að ákveða snemma í mánuðinum hvað má eyða miklu. Ef fólk gerir fjárhagsáætlun fyrir mánuðinn verður líka kannski aðeins auðveldara að halda sig á mottunni og forðast skyndiákvarðanir um innkaup segir Barry.

Ef fólk á erfitt með að forðast skyndiákvarðanir og skyndikaup er gott að nota bara reiðufé því þá er ekki hægt að eyða um efni fram og ganga á yfirdráttarheimildina segir hún einnig. Hún segir einnig mikilvægt að tala opinskátt um fjármálin við fjölskylduna til að koma í veg fyrir þrýsting um að eyða of miklu og kannski hefur þetta sömu jákvæðu áhrif á aðra fjölskyldumeðlimi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður veitingastaðar dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir ógeðslegt athæfi

Starfsmaður veitingastaðar dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir ógeðslegt athæfi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ætlaði að koma fyrrverandi kærustunni á óvart og faldi sig inn í skáp – Það endaði með blóðbaði

Ætlaði að koma fyrrverandi kærustunni á óvart og faldi sig inn í skáp – Það endaði með blóðbaði
Pressan
Fyrir 5 dögum

Læknar voru sannfærðir um að hann væri á eiturlyfjum, þangað til þeir kíktu í eyrað á honum

Læknar voru sannfærðir um að hann væri á eiturlyfjum, þangað til þeir kíktu í eyrað á honum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tekinn af lífi fyrir hrottalegt morð á nágranna sínum – Svona leit síðasta máltíðin hans út

Tekinn af lífi fyrir hrottalegt morð á nágranna sínum – Svona leit síðasta máltíðin hans út
Pressan
Fyrir 6 dögum

Ætlar að senda eftirlitsmenn til að fylgjast með eftirlitsmönnum

Ætlar að senda eftirlitsmenn til að fylgjast með eftirlitsmönnum