
Rússar fordæma árásir Bandaríkjahers á Venesúela en rússneska utanríkisráðuneytið segir árásirnar mikið áhyggjuefni. Ljóst sé að hugmyndafræðileg fjandsemi hafi í morgun sigrað raunsæishyggju.
„Í morgun frömdu Bandaríkin vopnaða árás gegn Venesúela. Þetta er mikið áhyggjuefni og er fordæmanlegt,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins sem jafnframt tekur fram að allar átyllur stjórnvalda í Bandaríkjunum fyrir aðgerðunum séu óverjandi. Ráðuneytið segir Rússa ítrekað samstöðu sína með fólkinu í Venesúela.
Ráðuneytið hefur eins farið fram á upplýsingar um hvar forseta Venesúela, Nicolás Maduro, sé haldið enda sé það gífurlegt inngrip í fullveldi sjálfstæðs ríkis að ráðast þangað inn og ræna leiðtoga þess.
Stjórnvöld í Venesúela segjast enn vinna að því að meta mannfallið af aðgerðum Bandaríkjahers og hafa heitið því að berjast gegn innrásarher Bandaríkjanna. Eins hafa stjórnvöld skorað á Bandaríkin að sýna fram á að Maduro sé enn á lífi.
Öldungadeildarþingmaður Repúblikana í Bandaríkjunum, Mike Lee, hefur það eftir utanríkisráðherranum Marco Rubio að til standi að draga Maduro fyrir dómstóla í Bandaríkjunum. Eins vill hann meina að aðgerðirnar í morgun hafi verið löglegar, þrátt fyrir að Bandaríkjaþing hafi ekki veitt samþykki sitt, á grundvelli ákvæðis stjórnarskrárinnar um heimild forseta til að vernda bandarískt starfslið gegn yfirstandandi eða yfirvofandi árásum.