fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Pressan

Umdeildi fjölmiðlamaðurinn segir meiri ógn stafa af OnlyFans en múslimum

Pressan
Mánudaginn 29. desember 2025 16:30

LOS ANGELES, CA - OCTOBER 21: Tucker Carlson speaks onstage during Politicon 2018 at Los Angeles Convention Center on October 21, 2018 in Los Angeles, California. (Photo by Rich Polk/Getty Images for Politicon )

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umdeildi fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson telur að Bandaríkjunum stafi meiri ógn af vefsíðunni OnlyFans, þar sem konur selja gjarnan kynferðislegt myndefni, heldur en af öfgafullum múslimum.

Hann sagði í viðtali við The American Conservative á föstudaginn að sjálfur þekki hann engan sem hafi verið myrtur af öfgafullum múslímum síðustu 24 árin, en hryðjuverkin 11. september árið 2001 áttu sér stað fyrir 25 árum.

Fjölmiðlamaðurinn segir hina raunverulegu ógn vera hnignun siðmenningarinnar sem felist meðal annars í vefsíðum á borð við OnlyFans, aukinni fíkniefnaneyslu og auknu þunglyndi.

„Ég þekki hins vegar marga sem hafa svipt sig lífi. Ég þekki fólk sem hefur látið lífið úr ofskömmtun fíkniefna, og það eru ekki fáir. Ég þekki fólk sem fær ekki vinnu.“

Nefndi hann sérstaklega að skólabræður dóttur hans séu atvinnulausir og gangi ekkert í atvinnuleitinni. „Ekkert af þessum hvítu strákum fær vinnu. Síðan er verið að rústa lífum þeirra með Adderall [lyfjum við ADHD], tölvuleikjum og klámi.“

Hann hélt svo áfram:

„Ég sé lífi milljóna Bandaríkjamanna rústað og það er ekki vegna öfgafullrar múslimatrúar. Eru öfgafullir múslímar hættulegri en OnlyFans? Ekki nærri því sko.“

OnlyFans hafi gert fjölda bandarískra kvenna að vændiskonum.

Ummæli Carlson má rekja til könnunar sem samtökin Turning Point USA gerðu nýlega meðal gesta á viðburði samtakanna sem kallast AmFest. Þar voru gestir spurðir hver væri helsta ógnin sem Bandaríkin glíma við í dag. Flestir svöruðu að það væru öfgatrúaðir múslímar. Carlson segir að þetta sé afleiðing áróðurs frá Ísrael og bandamönnum þeirra í Bandaríkjunum. Carlson segist vorkenna þeim sem trúa þessum lygum.
fyrru
Ummæli Carlson hafa valdið fjaðrafoki meðal íhaldsmanna. Áhrifavaldurinn Meghan McCain segir að næst muni Carlson líklega kalla alla stríðsæsingarmenn sem ekki taka upp íslamstrú. Aðrir íhaldsmenn kalla fjölmiðlamanninn útsendara íslams og velta fyrir sér hvað vaki fyrir honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“

Varpar sprengju sem gæti sett málið gegn meintum banamanni Charlie Kirk í uppnám – „Sögðu að við ættum ekki að rannsaka þetta nánar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“

Kartafla vakti mikinn óhug – „Brenndu þetta til dauða“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna

Enn þreytt eftir fullan nætursvefn? – Sérfræðingur segir þetta ástæðuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar

Vaknaði upp við vondan draum eftir að eltihrellirinn braust inn til að sjúga á henni tærnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys

„Ég klúðraði þessu“ – Hljóðupptaka varpar ljósi á hið hörmulega slys
Pressan
Fyrir 5 dögum

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana

Danskar konur gagnrýna að Svíar hafi fylgt fordæmi Dana