fbpx
Miðvikudagur 14.janúar 2026
Pressan

Varð fyrir tilefnislausum árásum í Köln á gamlárskvöld – Sjáðu myndbandið

Pressan
Föstudaginn 2. janúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband sem sýnir þýska kvenkyns samfélagsmiðlastjörnu verða fyrir óvægnum árásum á götum Kölnar í Þýskalandi á gamlárskvöld hefur vakið athygli.

Konan, sem kallar sig Kunshikitty, er með um 200 þúsund fylgjendur á Twitch þar sem hún streymir meðal annars frá tölvuleikjum.

Á gamlárskvöld var hún í beinni útsendingu á Twitch-síðu sinni í miðborg Kölnar þegar óþekktir karlmenn köstuðu meðal annars flugeldum í hana, þar á meðal í andlit hennar.

Kunshikitty var klædd í áberandi bleikan snjógalla og virðist það hafa farið fyrir brjóstið á viðstöddum.

Þýska blaðið Bild segir að Kunshikitty hafi tilkynnt málið til lögreglu og staðfestir lögreglan við miðilinn að málið sé komið á hennar borð.

Myndbandið hefur vakið talsverða athygli í Þýskalandi og víðar og segir í frétt News.com.au að margir hafi rifjað upp atburði í borginni um áramótin 2015-2016 þegar ráðist var á fjölmargar konur  og þær beittar kynferðislegu ofbeldi eða áreitni.

Í fréttum á þeim tíma kom fram að margir hinna grunuðu hefðu verið hælisleitendur og var lögregla gagnrýnd harðlega fyrir að hafa ekki haft nægilegan viðbúnað í borginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tyrknesk kona segist líffræðileg dóttir Trump – Höfðar mál og krefst DNA-faðernisviðurkenningar

Tyrknesk kona segist líffræðileg dóttir Trump – Höfðar mál og krefst DNA-faðernisviðurkenningar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hundur réðst á móður – „Fóturinn hékk á bláþræði“

Hundur réðst á móður – „Fóturinn hékk á bláþræði“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ástæða sambandsslita stjörnuparsins afhjúpuð

Ástæða sambandsslita stjörnuparsins afhjúpuð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fimm algeng orðasambönd sem lygarar nota — þar á meðal algjör bullsetning

Fimm algeng orðasambönd sem lygarar nota — þar á meðal algjör bullsetning
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglumenn trúðu ekki eigin augum – Eins og atriði í hryllingsmynd

Lögreglumenn trúðu ekki eigin augum – Eins og atriði í hryllingsmynd
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandaríska hernum bannað að standa fyrir æfingum sem kallaðar hafa verið dýraníð

Bandaríska hernum bannað að standa fyrir æfingum sem kallaðar hafa verið dýraníð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Trump ætlar að gera árásir á landi gegn eiturlyfjagengjum í Mexíkó

Trump ætlar að gera árásir á landi gegn eiturlyfjagengjum í Mexíkó
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var konan sem ICE skaut til bana aktívisti? – Fjölskyldan kemur af fjöllum en nágrannar syrgja baráttukonu

Var konan sem ICE skaut til bana aktívisti? – Fjölskyldan kemur af fjöllum en nágrannar syrgja baráttukonu