En móðir sex ára stúlku í Arizona í Bandaríkjunum átti enga von á því að það myndi hafa töluverð eftirköst þegar hún leyfði dóttur sinni að nota farsímann sinn til að panta Barbie dúkku frá Amazon nýlega. Dúkkuna fékk dóttirin af sérstöku tilefni.
Þegar dótturina var farið að lengja eftir dúkkunni fékk hún farsíma móður sinnar lánaðan til að kanna stöðu sendingarinnar hjá Amazon. En það sem móðirin vissi ekki var að dóttirin, Kaitlin, notaði tækifærið til að panta leikföng, tölvuleiki og spil að andvirði 300 dollara. Þetta lét hún auðvitað senda heim.
Móðirin vissi því ekkert af málinu fyrr en næsta dag þegar sendill frá Amazon birtist á tröppunum með fjölda kassa. Hún skildi ekkert í þessu en þegar hún skoðaði notendareikninginn sinn hjá Amazon áttaði hún sig á hvað Kaitlin hafði gert.
Frænka Kaitlin, Ria Diyalou, birti færslu um þetta á Twitter og myndir af sendingunni góðu. Á myndunum má sjá að Kaitlin er meira en lítið ánægð með sendinguna og sér ekki eftir að hafa pantað allar þessar vörur.
Móðir Kaitlin hefur nú ákveðið að gefa barnaspítala öll leikföngin en Kaitlin dvaldi einmitt á þessum barnaspítala þegar hún var kornabarn.