fbpx
Mánudagur 15.september 2025
Matur

Coca-Cola setur kóladrykk með kaffibragði á markaðinn – Misheppnaðist 2006 en nú verður reynt aftur

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 3. júní 2019 21:30

Coca-Cola Blak

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drykkjarvöruframleiðandinn Coca-Cola ætlar að setja kóladrykk, Coca-Cola, með kaffibragði á markaðinn á næstunni og mun drykkurinn fást um allan heim. Fyrirtækið reyndi að markaðssetja þennan sama drykk 2006 en það mistókst og var hann tekinn af markaði 2008. En nú verður reynt á nýjan leik enda telur fyrirtækið að neytendur séu nú tilbúnir til að kaupa þennan drykk.

„Coca-Cola Blak“ var, eins og fyrr segir, tekið af markaði 2008 eftir aðeins tvö ár. Drykkurinn er hefðbundið Coca-Cola með kaffibragði og virtust viðskiptavinir ekki hrifnir af honum. CNN hefur eftir Nancy Quan, yfirmanni tæknimála hjá Coca-Cola, að fyrirtækið hafi verið á undan sinni samtíð með þessum drykk. Viðskiptavinirnir hafi ekki verið reiðubúnir til að samþykkja Coca-Cola með kaffibragði árið 2006.

En smekkur fólks breytist með tímanum og því telur Coca-Cola að markaðurinn og neytendur séu nú reiðubúnir til að taka vel á móti þessum drykk. Á undanförnum árum hefur Coke sett vörur, sem líkjast Coca-Cola Blak, á markað í nokkrum löndum. Þeir heita til dæmis Coca-Cola Plus Coffee og Coca-Cola With Coffee. Þessar tegundir innihalda meira koffín en hið upprunalega Coca-Cola Blak.

Nú er til dæmis hægt að fá kaffiafbrigði af Coca-Cola í Ástralíu, Ítalíu, Spáni, Taílandi og Póllandi. Móttökurnar hafa verið svo góðar að sögn talsmanns Coca-Cola að þessar tegundir verða settar á markað í 25 löndum til viðbótar á þessu ári. En stærsta prófraunin verður bandaríski markaðurinn. Þess er vænst að drykkurinn komi á markað þar á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
07.05.2025

Svona er matarbúrið hjá einni þekktustu konu heims – Eins og lítil verslun þar sem enginn draslar til

Svona er matarbúrið hjá einni þekktustu konu heims – Eins og lítil verslun þar sem enginn draslar til
Matur
29.04.2025

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“

Uppáhalds matur barnæskunnar – „Ég skammast mín smá fyrir að segja þetta en það var kallað rónabrauð“
Matur
21.03.2025

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“

„Við heyrðum neyðarkallið og ákváðum að bregðast strax við“
Matur
03.03.2025

Elenora Rós er orðlaus yfir viðtökunum – „Mikið ofboðslega er ég lánsöm lítil kona“

Elenora Rós er orðlaus yfir viðtökunum – „Mikið ofboðslega er ég lánsöm lítil kona“