fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Járn er nauðsynlegt fyrir líkamsstarfsemina

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 31. ágúst 2021 10:00

Caroline Montelius hjá Probi AB í Svíþjóð er rannsóknarvísindamaður með doktorsgráðu í líflæknis- og næringarfræði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Probi járn inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plantarum 299v auk járns, fólínsýru og C vítamíns sem eykur upptöku járns.

Steinefni eru nauðsynleg næringarefni sem líkaminn þarfnast í litlu magni fyrir eðlilega líkamsstarfsemi. Þau gegna ýmsum mikilvægum hlutverkum, svo sem við uppbyggingu og eðlilega starfsemi líkamans en meðal þeirra mikilvægustu er járn. Aðalhlutverk járns er að flytja súrefni til frumna líkamans ásamt því að vera mikilvægt fyrir ónæmiskerfið og heila- og taugastarfsemi. Járn er að auki mikilvægt fyrir vöxt og heilaþroska barna og unglinga.

Járnskortur hvimleitt vandamál

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnun (WHO) er járnskortur algengasti næringarefnaskortur í heiminum. Járnskortur lýsir sér helst í orkuleysi og þreytu en við langvarandi járnskort geta komið upp ýmsir aðrir kvillar.

Skortur kemur oftast við sögu vegna ónógs járns í fæðu, aukinnar þarfar járns, lélegs frásogs eða blóðmissis. Börn og unglingar, íþróttafólk og eldra fólk getur ýmist verið í áhættu fyrir skorti og er járn jafnframt eina næringarefnið sem konur þurfa hlutfallslega meira af en karlar, m.a. eykst blóðmagn líkamans á meðgöngu til að flytja súrefni og næringu til fósturs og þar með eykst þörf móðurinnar. Mikilvægt er því að huga að næringunni og að fá öll þau nauðsynlegu næringarefni sem líkaminn hefur þörf á.

Mikilvægt að huga að járnbúskap

Líkaminn getur ekki framleitt járn sjálfur og er því mikilvægt að fá það í gegnum fæðu eða sem viðbót. Oft á tíðum er nóg að bregðast við járnþörf með því að borða járnríka fæðu dagsdaglega. Helstu járngjafar í íslensku mataræði er kjöt og kjötvörur, fiskur, morgunkorn, baunir, dökkt grænmeti, fræ og heilkorn. Einnig er gott að huga að því að járn frásogast betur ef C vítamín er tekið inn samhliða. Við nýtum þó ekki nema tiltölulega lítið járn úr fæðunni og getur því verið mikilvægt að innbyrða járn í bætiefnaformi.

Probi® Járn vinnur gegn lágum járngildum á alveg nýjan máta, með því að auka upptöku járns, ekki eingöngu inntöku.

Probi járn fyrir aukna járnupptöku

Algengt er að einungis örlítið magn af járni úr hefðbundnum járnbætiefnum nýtist í líkamanum sem þýðir að hlutfallslega mikið magn af óuppteknu járni getur orðið eftir í meltingarveginum og valdið ýmsum óþægindum. Járnblandan frá Probi inniheldur einkaleyfisvarða mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plantarum 299v sem viðheldur heilbrigðum meltingarvegi og hefur verið rannsakaður til fjölda ára. Auk þess inniheldur varan járn, fólínsýru og C vítamín sem m.a. stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og eykur upptöku járns. Probi járn hefur það að markmiði að auka upptöku járns og er milt fyrir meltingarkerfið sem og náttúruleg leið til að viðhalda góðum járngildum. Að auki hentar járnformúlan frá Probi fyrir barnshafandi konur.

Einkaleyfisvarðir mjólkursýrugerlar

Sænska fyrirtækið Probi AB var stofnað fyrir 30 árum síðan í kringum merkilega uppgötvun á mjólkursýrugerlinum Lactobacillus plantarum 299v. Gerillinn sýndi sig vera sérlega harðgeran og hafa eiginleika til að fjölga sér í meltingarvegi og styrkja þar með varnir okkar og draga úr óþægindum tengdum maga og meltingu. Probi AB er í dag leiðandi á heimsvísu í rannsóknum á mjólkursýrugerlum og með alheimseinkaleyfi á LP299V gerlinum, ásamt því að vera þeir einu sem innihalda gerilinn í vörum sínum á Íslandi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum