fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Nokkrir gullmolar á útsölu Tölvulistans

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 17. janúar 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er útsalan í Tölvulistanum í fullum gangi, en þar er allt að 50% afsláttur af yfir 1000 tölvuvörum. Frábær tilboð á fartölvum, skjám, netbúnaði, prenturum og leikjavörum, svo fátt eitt sé nefnt. Hér höfum við hjá Tölvulistanum tekið saman helstu gullmola útsölunnar.

Fyrst má nefna Rapoo 9300M lyklaborðið og músina (RAP-9300M) sem er á 30% afslætti á aðeins 6.997 kr. (fullt verð er 9.995 kr.) Settið er fjöltengjanlegt, þráðlaust og með íslensku stafasetti. Já, lyklaborðið og músin geta tengst fleiri en einu tæki í einu og auðvelt er að skipta á milli tækja. Þetta er því einstaklega hentugt fyrir aðila sem þurfa að vinna á fleiri en einu tæki.

 

Rapoo 9300M lyklaborð og mús.

Ef þú ert í prentarahugleiðingum þá mælum við með EcoTank ET-2750 (EPS-ET2750), sem er fjölnota prentari frá Epson með einstaklega lágan rekstrarkostnað. EcoTank býður upp á þráðlausa prentun og kemur með bleki sem dugir í allt að 2 ár – og áfylling kostar aðeins brot af verði annarra blekhylkja miðað við magn. Frábær lausn fyrir heimili sem vilja draga úr prentkostnaði. Epson EcoTank ET-2750 er á 20% afslætti á útsölunni, en kostar nú 39.996 kr. í stað 49.995 kr.

EcoTank ET-2750 fjölnota prentari.

Ef þú ert að leita eftir öflugri fartölvu, þá er VivoBook 15 X512FA frá Asus (ASU-X512FABQ161R) fyrir þig. Hún er útbúin 8. kynslóðar Intel i7 örgjörva og 8GB DDR4 minni og er því fullkomin fyrir fólk sem vinnur í mörgum verkefnum í einu eða við vinnslu flóknari verkefna á borð við myndvinnslu eða aðra margmiðlunarvinnslu. Þessi tölva inniheldur einnig ASUS SonicMaster hljóðtækni, en þessi tækni skerpir hljóðið, síar frá suð og tryggir virkilega tæran hljóm. Þessi er á 25% afslætti, en hún kostar aðeins 134.996 kr. á útsölunni!

Við mælum einnig með Philips E Line tölvuskjánum (PHS-275E1S), en þetta er 27 tommu skjár með þriggja hliða rammalausri hönnun og QHD upplausn (2560×1440) sem skilar sér í allt að 43% meira vinnuplássi en skjáir í FullHD (1920×1080). Skjárinn sýnir 104% af sRGB litasviði, sem tryggir að þú sjáir efnið eins og það var hannað hvað varðar vörur, vefsíðuhönnun o.fl. Skjárinn er á 20% afslætti á útsölunni og kostar nú 31.996 kr. í stað 39.995 kr.

Philips E Line tölvuskjár.

Alvöru leikjaspilurum bendum við á Acer Nitro 5 leikjafartölvuna (ACE-NHQ59ED08E), en hún uppfyllir allar helstu kröfur leikjaspilarans. NVIDIA GeForce GTX 1650 skjákort og öflugur Intel i5 örgjörvi tryggja mjúka og háhraða spilun. Acer TrueHarmony hátalarar gera upplifunina enn raunverulegri og Full-HD skjár með IPS-tækni skerpir á litum og gæðum, jafnvel þegar horft er frá hlið. Að auki gefa Acer NitroSense og CoolBoost-tæknin notandanum enn meiri stjórn á búnaðinum og sjá til þess að kæla vélina og tryggja hámarksafköst. Á útsölunni er þessi fartölva á 20% afslætti og kostar nú 159.996 kr. en fullt verð er 199.995 kr.

Acer Nitro 5 leikjafartölva.

Í verslunum og netverslun Tölvulistans, tl.is, má finna fjölda fleiri tilboða á fartölvum og öðrum vörum. Það finna allir eitthvað við sitt hæfi á frábæru verði. Ef þú ert í einhverjum vafa getur þú kíkt við í næstu verslun Tölvulistans eða sent tölvupóst á sala@tl.is til að fá frekari ráðgjöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum