fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Vallarbraut: Öflugar gæðavörur fyrir landbúnaðinn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 2. ágúst 2019 13:00

Jón Valur Jónsson og Ingvar Sigurðsson. Mynd: Eyþór Árnason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Innflutningsfyrirtækið Vallarbraut stofnuðu þeir Jón Valur Jónsson og Ingvar Sigurðsson árið 2015. „Þó svo að aðalvörurnar hjá okkur séu SOLIS og HATTAT dráttarvélar erum við að flytja inn ýmsar aðrar vörur fyrir landbúnað, einstaklinga og verktaka.

Mynd: Eyþór Árnason

Við erum t.d. með kerrur og vagna fyrir flest tæki sem og flest tæki sem hægt er að hengja á dráttarvélar. Einnig erum við að flytja inn mótorhjól frá Royal Enfield,“ segir Jón Valur.

Jón Valur Jónsson og Ingvar Sigurðsson. Mynd: Eyþór Árnason.

Vallarbraut heldur úti metnaðarfullri heimasíðu og youtube rás þar sem finna má myndbönd af öllum helstu innflutningsvörum sem eru til sölu hjá fyrirtækinu. „Okkur þykir mikilvægt að viðskiptavinir okkar geti séð í lit hvernig vörurnar eru að standa sig, sérstaklega þeir sem eru úti á landi og eru ekki á hverjum degi í Hafnarfirði.“

Öflugir vagnar og kröftugar kerrur frá frændum á Írlandi

Vallarbraut er með afar gott úrval af sturtu- véla- og flatvögnum í fjölbreyttum stærðum og gerðum. „Þá erum við meðal annars með mjög vandaða og sterka vagna frá KANE og við getum útvegað malarvagna fyrir dráttarvélar með burðargetu frá 1–30 tonn.

Vélavagn 24 t og malarvagn 20 t.

Þá erum við með lengri og styttri vélavagna með rampi sem taka 16 eða 24 tonn. Við bjóðum einnig upp á vörubílsvagna frá GT SEMI TRAILER í Tyrklandi. Við seljum aðallega frá þeim vélavagna og gámaflutningagrindur og er EIMSKIP að fá afhentar 6 gámagrindur á næstu dögum.“

GT gámagrindur afhentar.

Nugent er leiðandi framleiðandi í heiminum á kerrum undir 3.500 kg. heildarþyngd „Við eigum bílaflutningakerrur, litlar fjórhjólakerrur, gripakerrur, hestakerrur, sturtukerrur, vélakerrur og svo gott úrval af aukabúnaði sem og varahlutum.“

Nugent kerra.

Nugent framleiðir einnig vörur fyrir landbúnaðinn og er Vallarbraut með rúllu- og baggagreipar, rúlluspjót og afrúllara frá því. „Þá erum við með úrval af einföldum og tvöföldum greipum og sterkbyggða gjafavagna með lásagrindum eða venjulegum átgrindum.“

Belmac: Írsk gæðaframleiðsla / Sérfræðingar í skítkasti

„Belmac er írskt fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1987. Belmac haugsugur og keðjudreifarar/skítadreifarar eru vinsælir um allan heim enda um gæðavöru að ræða. Stærsta haugsugan okkar er frá Belmac og tekur heila 15.911 lítra. Um er að ræða tveggja öxla tryllitæki með beygjuöxli að aftan og 12.000 lítra dælu.

Belmac haugsugur er hægt að fá í öllum helstu dráttarvélalitunum

Ástralir og Nýsjálendingar virðast vera hrifnir af 12.274 lítra Belmac haugsugunni enda öflug haugsuga á góðu verði. Minnsta haugsugan frá Belmac er 5228 lítra og kemur hún á 9 tonna öxli. Skítadreifararnir eru framleiddir í  stærðunum 1 til 12 „cubicyards“ og byggja á áratuga langri hönnun sem margir kannast við til sveita.“

Öryggi í landbúnaði

„Okkur hjá Vallarbraut og Belmac er annt um öryggi í landbúnaði og höfum reynt að leggja okkar af mörkum til að minnka slysahættu. Vallarbraut er eina fyrirtækið hérlendis sem býður upp á drifskaftslausar haugsugur en drifsköft valda oftast alvarlegustu slysunum. Með vökvaknúinni dælu er búið að fjarlægja alla snúningshluti sem mögulegt er að festast í.“

Öflugir Pólverjar

Það má segja að Pólland sé í örum vexti hvað varðar framleiðslu á landbúnaðartækjum. Frá Póllandi koma heyvinnutæki ofl. frá JAR-MET og jarðvinnslutæki frá BOMET. „Einnig erum við að hefja innflutning á pólskum bogaskemmum. Undanfarið hafa áburðardreifarar og steypuhrærivélar verið mest selda varan frá JAR-MET.

Jar-met steypuhrærivél.

Litlir dragtengdir dreifarar sem hægt er að hengja aftan í fjórhjól bjóða upp á fjölbreytta notkun, því með þeim er hægt að dreifa áburði, sandi og salti.“

Jar-Met 300l dragtengdur áburðarsaltsanddreifari.

 

Kurlarar og ruddasláttuvélar

„Undanfarið hefur orðið mikil eftirspurn eftir tækjum tengdum skógrækt. DELEKS og AGRIMASTER frá Ítalíu bjóða upp á breitt úrval tækja fyrir t.d. skógræktarfólk. Vallarbraut er með öfluga kurlara sem eru tengdir við traktor og geta tekið allt að 15 cm. trjáboli.

Deleks kurlari.

Ruddasláttuvélar með hliðarfærslu og lóðréttri stillingu hafa vakið mikla athygli enda öflug vél á góðu verði. Frá Agrimaster bjóðast svo sláttuvélar með safnkassa sem geta sturtað upp í vagna.“

Deleks ruddasláttuvél.
Agrimaster með safnkassa.

Vallarbraut er staðsett að Trönuhrauni 5, 220 Hafnarfirði.

„Frá Tyrklandi flytjum við inn vörubílsvagna GT Semi trailers.“

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni og vefversluninni vallarbraut.is

Fylgstu með á Facebook: Vallarbraut og Youtube: Vallarbraut ehf.

Netpóstur: vallarbraut@vallarbraut.is

Mynd: Eyþór Árnason

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum