fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Kynning

Ban Kúnn: Ferskur tælenskur matur frá hjartanu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 10. desember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hér hefur verið mikið að gera frá fyrsta degi og fólk hefur tekið okkur enn betur en ég þorði að vona. Fyrst kom fólkið úr hverfinu en svo fór þetta að berast og núna kemur hingað fólks allsstaðar að. Við fáum meira að segja pantanir frá erlendum ferðaskrifstofum,“ segir Svavar G. Jónsson hjá Ban Kúnn.

Notalegt andrúmsloft og hagstæð tilboð

Ban Kúnn þýðir „heima hjá þér“ á tælensku en þannig líður manni þegar maður gengur þangað inn. Hádegis- og kvöldverðartilboðið er vinsælt hjá gestum staðarins. Sex réttir eru í borðinu og má velja þrjá rétti á diskinn. „Við breytum daglega um rétti og því er alltaf eitthvað nýtt í borðinu. Í hádeginu kosta herlegheitin 1.990 kr. en á kvöldin 2.200 kr. þegar tekið er með sér, sem hlýtur að teljast afar hagstætt verð fyrir svo góðan mat,“ segir Svavar.

Karrí er ekki bara karrí!

Natthawat segir kryddin vera stóran þátt í tælenskri matargerð og þau verði að nota rétt. „Hér áður þekktu Íslendingar víst bara eina tegund af karrí, það er gult karrí eða indverskt karrí. En það eru til óteljandi karrítegundir í heiminum og á Ban Kúnn erum við með svo margar tegundir að við segjum stundum við kúnnann þegar hann biður um karrí: „Karrí og karrí er alls ekki það sama og karrí,“ segir Natthawat kíminn.

Ferskleikinn í fyrirrúmi

„Kryddin eru líka mjög mismunandi, sumt er þurrt duft, annað er eins og mauk líkt og karrímauk. Svo notum við líka ferskar kryddjurtir þó það geti verið erfitt að fá þær. Í tælenskri matargerð er mikilvægt að allt hráefnið sé eins ferskt og hægt er og við notum t.d. aldrei frosið grænmeti. Við notum mikið ferskt grænmeti, kjúkling, svínakjöt, nautakjöt og fisk í réttina. Hráefnið verður allt að standast strangar gæðakröfur sem ég fylgist mjög vel með,“ segir Natthawat. „En það sem er best við matinn hjá okkur er að við eldum hann frá hjartanu. Sumir elda bara og leggja ekkert í eldamennskuna. Að elda mat er að gefa hluta af sjálfum sér, þess vegna verður maður að gera það vel.“

Ekta tælenskur matur – eins og í Tælandi

„Auk tilboðanna erum við með 25 rétti á matseðli og nokkrir þeirra eru grænmetisréttir. Annars er hægt að gera flesta réttina að grænmetisréttum eða jafnvel vegan ef vill. Fyrir utan það getum við eldað ótal marga sértælenska rétti. Fólk getur því komið hingað og beðið okkur um að sérelda uppáhalds tælenska réttinn sinn. Hér leggjum við áherslu á að hafa réttina upprunalega, nákvæmlega eins og ef staðurinn væri í Tælandi,“ segir Svavar.

Uppskrift sem hefur gengið í ættir

„Pad Thai er vinsælasti rétturinn á matseðlinum. Hann inniheldur hrísgrjónanúðlur, grænmeti, kjöt eða rækjur, og síðan er það leyndarmálið sem allir alvöru tælenskir veitingastaðir verða að hafa – en það er sósan,“ segir Svavar. Sósan í réttinum þykir einstök. Uppskriftin kemur frá langömmu eiginmannsins, Natthawat, en fjölskylda hans hefur stundað veitingarekstur í Tælandi mann fram af manni.

Ban Kúnn er staðsettur að Tjarnarvöllum 15, Hafnarfirði.

Opnunartímar: Virka daga 11-21 og helgar (og aðrir frídagar) 17-21.

Sjá nánar á Facebook-síðunni Ban Kúnn.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7