fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Kynning

Efni í góðan árangur hjá fjölmiðlakonunni Kristínu Sif

Kynning
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. febrúar 2023 13:09

Kristín Sif fjölmiðlakona á K100 er þekkt fyrir heilbrigðan lífsstíl, en hún er vinsæll einkaþjálfari. Hún hefur mikla trú á bætiefnum til að styðja við heilsusamlegan lífsstíl, en Kristín leggur mikið upp úr náttúrulegum valkostum er kemur að bætiefnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Sif fjölmiðlakona á K100 er þekkt fyrir heilbrigðan lífsstíl, en hún er vinsæll einkaþjálfari. Hún hefur mikla trú á bætiefnum til að styðja við heilsusamlegan lífsstíl, en Kristín leggur mikið upp úr náttúrulegum valkostum er kemur að bætiefnum.

„Vinkona mín benti mér á að taka Energy frá Saga Natura og ég sé ekki eftir því að hafa prófað það,“ segir Kristín Sif. Hún segist hér hafa fundið fæðubótarefni sem hefur bætt árangur hennar. „Ég þekki nokkra sem taka Energy og allir eru á sama máli að varan virki vel. Ég finn góða orku og einbeitingu án þess að verða ör. Ég vil alls ekki taka orkublöndur því þær gera mig öra. Það eina sem ég geri er að drekka nógu mikið vatn og taka tvær töflur af Energy fyrir æfingar.

Mér finnst ótrúlega hentugt að hafa Energy dós í töskunni. Ég æfi oftast í hádeginu og tek alltaf Energy ca hálftíma fyrir æfingu. Energy er svo frábært af því að það eru engin aukaefni í vörunni, aðeins góð náttúrulega efni eins og burnirót og koffein.“

Mælir líka með SagaMemo

Kristín mælir einnig með að taka SagaMemo með Energy: „Saga Memo er úr hvannafræjum og eins og með Energy finnst mér það bæta einbeitingu og minnið mikið. Ég hef kynnst vörum Saga Natura og get með sanni sagt að þetta eru einstakar náttúruvörur sem virka. Starfsemin sem fer fram hjá Saga Natura er mögnuð. Þar vinnur afar hæft fólk sem hefur rannsakað virkni ýmissa planta úr íslenskri náttúru í yfir 20 ár.“

Afsláttur í áskrift

„Eftir að ég byrjaði að taka inn vörur frá Saga Natura ákvað ég strax að skrá mig í áskrift hjá þeim, en þannig fæ ég aukinn afslátt og fría heimsendingu. Mér finnst geggjað að þurfa ekki að koma að tómum fæðubótarílátunum af því ég gleymdi að kaupa. Nú get ég strikað þetta út af to-do listanum mínum og fæ fæðubótarefnin send heim í pokum sem ég fylli svo á dollurnar. Afar hentugt í alla staði.“

Saga Natura er íslenskt rannsóknar- og líftæknifyrirtæki sem byggir á rúmlega 20 ára sögu. Sérhæfing Saga Natura liggur í þróun sértækra fæðubótarefna unnið úr náttúrulegum efnum eins og ætihvönn og þörungum.

Energy frá Saga Natura

Energy er vegan orkublanda sem inniheldur mörg virk efni sem talin eru stuðla að aukinni orku, einbeitingu og bættri streitustjórnun. Aðalinnihaldsefni Energy eru burnirót, koffín, L-theanín og B- vítamín blanda.

Burnirót á sér langa sögu sem lækningajurt eða aftur til ársins 77 e.kr. og stuðlar að almennri vellíðan og jafnvægi í líkamanum. Rótin virðist virka vel meðal annars gegn stressi, einbeitingarskorti og bætir árangur fólks í íþróttum.

Koffín er örvandi efni sem finnst í náttúrunni t.d. í kaffi, te, kakó og súkkulaði. Gæta þarf þess að neyta koffíns í hóflegu magni og eru 105 mg af koffíni sem Energy inniheldur vel undir hóflegum mörkum. Þungaðar konur og börn ættu ávallt að forðast koffín.

L-theanín er rannsakað bætiefni og stuðlar að auknu jafnvægi og minnkuðu stressi. B-vítamín blanda Energy inniheldur B5, B6 og B12. Blandan styrkir húð og meltingarfæri, hjálpar til við myndun serótóníns í heilanum og er mikilvæg fyrir vöxt, frjósemi, tauga- og ónæmiskerfi. Að lokum styður það við flutning á súrefni um líkamann um rauðu blóðkornin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
Kynning
16.06.2023

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt
Kynning
04.05.2023

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS