fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Kynning

Ritsmiðja, listasýning og notaleg stemning á Bókasafni Árborgar: „Við erum alltaf með heitt á könnunni“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 8. mars 2020 10:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bókasafn Árborgar á Selfossi réðst í heilmiklar framkvæmdir í vetur til þess að bæta húsakost og auka enn frekar þægindi gesta sinna. „Hér hefur auðvitað alltaf verið þægilegt andrúmsloft, skemmtilegir gestir og notalegt að dvelja með góða bók, dagblað eða námsefni og sötra rjúkandi kaffi, en lengi má gott bæta. Við bættum við öðrum lesbekk í einn gluggann og erum því með tvö gluggasæti sem gott er að koma sér fyrir í, lesa góða bók og skoða mannlífið fyrir utan. Einnig erum við með notalega lesstofu þar sem gott er að setjast niður og lesa eða læra í ró og næði,“ segir Esther Erla Jónsdóttir bókavörður.

Bókasafn Árborgar samanstendur af þremur bókasöfnum, þ.e. á Selfossi, í Blátúni á Eyrarbakka og svo í grunnskólanum á Stokkseyri. „Stærsta safnið er á Selfossi. Þar er jafnframt meiri starfsemi en á hinum söfnunum og opnunartími rýmri. Þess má geta að öllum útlánsbókum safnanna má skila á hvaða safn sem er af þessum þremur söfnum. Ásamt því að hýsa bókasöfn Árborgar höldum við fjölda menningarviðburða á ári. Við erum með tónlistarviðburði, listasýningar, upplestra og margt fleira. Það má alltaf bóka að eitthvað skemmtilegt sé að gerast á bókasöfnunum.“

Börnin elska að koma í bókasafnið

Barnabókahornið í bókasafninu er stórskemmtilegur viðkomustaður fyrir börn á öllum aldri. „Barnadeildin okkar er troðfullt af skemmtilegum bókum fyrir yngstu kynslóðina. Þá starfrækjum við m.a. sumarlestrarátak í júní fyrir krakkana í Árborg. Þá skrá börnin sig í sumarlestur og fá lestrarhefti til að halda tölu yfir lesturinn. Svo er haldinn viðburður í hverri viku í júní til þess að hvetja krakkana enn frekar til lestrar. Þá eru ratleikir, upplestrar, fyrirlestrar og fleira skemmtilegt.“

Bókasafn Árborgar var lengi vel eina bókasafnið á landinu sem leigði út kökuform. „Við erum með um 20 kökuform til leigu, allt frá prinsessupilsum og risaeðluformum upp í kransakökuform, sem er jafnframt nýjasta kökuformið okkar. Kökuformaleigan er mjög vinsæl hjá okkur enda er þetta stórsniðugt framtak.“

Bókasafn Árborgar á Selfossi rekur metnaðarfullt sýningastarf. „Í Listagjánni, sýningarsalnum okkar, er ávallt einhver áhugaverð listasýning í gangi. Í augnablikinu sýnir þar Davíð Art Sigurðsson abstrakt- og landslagsmálverk og ber sýningin yfirskriftina Ég vitja þín þegar vorar. Sýningin mun standa út marsmánuð en þá fer upp ný sýning með landslagsljósmyndum eftir Hallgrím P. Helgason, sem er ljósmyndari í Árborg.“

Hvað er á döfinni?

Framundan eru skemmtilegir og áhugaverðir viðburðir á vegum bókasafnsins. „Gunna Stella Pálmarsdóttir mun, þann 26. mars kl. 18, halda fyrirlestur um hvernig má einfalda lífið og minnka stress. Við bjóðum alla velkomna á þennan skemmilega viðburð á meðan húsrúm leyfir.

Hún Sunna Dís Másdóttir, sem meðal annars hefur birst á sjónvarpsskjáum landsmanna sem gagnrýnandi í Kiljunni, og er jafnframt ein af ljóðakollektívinu Svikaskáld, mun halda ritsmiðju hjá okkur 7. apríl. Um er að ræða fræðandi smiðju þar sem fjallað er um ævisögur, sjálfsævisögur og skáldævisögur sem og gráa svæðið á milli. Þá mun Sunna lesa upp brot úr ævisögum til þess að veita innblástur og svo gera þátttakendur stílæfingar út frá brotunum (Þau gera stílæfingar, en ekki endilega út frá brotunum). Hámarksfjöldi í smiðjuna er fimmtán en skráning er ekki hafin. Smiðjan og fleiri viðburðir verða auglýstir síðar á Facebook-síðu safnsins, Bókasafn Árborgar og við hvetjum lesendur til þess að fylgjast með okkur þar.“

Sunna Dís Másdóttir. Mynd: Saga Sig.

Nánari upplýsingar má nálgast á bokasafn.arborg.is

Tölvupóstur: bokasafn@arborg.is

Austurvegur 2, Selfossi
Sími: 480-1980
Opnunartími yfir vetrartíma: 1. september–31. maí. Virkir dagar: 09.00–19.00 og laugardagar: 10.00–14.00

Eyrarbraut 2, Stokkseyri
Sími: 480-3223
Opið er mánudaga og fimmtudaga kl. 16.00–18.00. Þriðjudaga kl. 19.00–21.00

Túngötu 40, Eyrarbakka
Sími 480-1991
Opið er mánudaga og fimmtudaga kl. 16.00–18.00. Þriðjudaga kl. 19.00–21.00 (Þriðjudaga og fimmtudaga 16 –18. Miðvikudaga 19–21)

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7