fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Ást og alúð í hverjum skammti

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 20. nóvember 2020 09:47

Dominique Plédel Jónsson átti stóran þátt í að færa vínmenninguna á Íslandi upp á hærra stig á síðustu öld. Ásamt því að vera sérfræðingur í víni þá er hún líka mikill aðdáandi kombucha frá Kombucha Iceland. Mynd/Silja Rut Thorlacius.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dominique Plédel Jónsson hefur starfað í vínbransanum í rúm 20 ár og er einn af frumkvöðlum vínmenningar á Íslandi. Auk þess er hún mikil áhugamanneskja um kombucha.

Eftir að hafa búið í Noregi og Danmörku í tíu ár sneri Dominique aftur heim og tók þá ríkan þátt í að færa vínmenninguna á Íslandi upp á hærra plan. „Ég kom aftur árið 1993. Vínmarkaðurinn á Íslandi var að taka stakkaskiptum og það varð í raun alger sprenging. Stærsta breytingin var að veitingastöðum var nú heimilt að flytja inn vín án milligöngu ÁTVR. Því fórum við nokkur saman út í að stofna vínþjónasamtök á Íslandi,“ segir Dominique.

Dominique hefur rekið Vínskólann í um 15 ár. „Skólann stofnaði ég vegna þess að menntunin sem þjónarnir fengu í þjónaskólanum dugði ekki á vínsviðinu. Um leið og þjónarnir voru orðnir vel að sér varð almenningur forvitinn og vildi fá fræðslu. Það fór því svo að ég bauð upp á námskeið fyrir almenning líka.“

Myndir/Dani Guindo.

Hreifst samstundis við fyrsta sopa

Dominique hefur verið viðriðin vínbransann í hartnær 20 ár og tekið að sér að þjálfa keppnislið í alþjóðlegum vínsmökkunarkeppnum. En þessi vínsérfræðingur ber ekki bara skynbragð á gott vín heldur er hún einnig hrifin af kombucha, þá sérstaklega af Glóaldin kombucha og Krækiberja kombucha frá íslenska fyrirtækinu Kombucha Iceland.

„Ég man þegar ég smakkaði kombucha í fyrsta sinn fyrir um 3-4 árum á matarmarkaði í Hörpu. Manuel og Ragna voru að kynna vörurnar sínar frá Kombucha Iceland. Ég hafði smá heyrt af þessu tískufyrirbæri sem virtist vinsælt vestanhafs. Á þessum tíma var virkur hópur íslenskra framleiðenda að byrja ýmsa spennandi framleiðslu og þau Ragna og Manuel voru í þessum hópi með íslenskt kombucha. Þegar ég tók fyrsta sopann fann ég að þau voru alveg með þetta. Þetta var einstaklega vel gert hjá þeim og ég hreifst samstundis. Ég fann að þetta virkjaði bragðlaukana á skemmtilegan hátt. Manuel hljóp svo til mín hinum megin við kynningarborðið, opnaði flösku með nýju bragði og beið fullur eftirvæntingar eftir að ég smakkaði nýja bragðið. Síðan þá hafa þau verið dugleg að leita til mín þegar þau þróa nýjar bragðtegundir.“

„Ég vil ekki ganga svo langt að segja að kombucha sé eins og vín, en get þó fullyrt að það séu ákveðnir samnefnarar. Líkt og vín þá virkjar kombucha frá Kombucha Iceland öll skynfærin. Þú drekkur það ekki bara með munninum heldur líka með augunum og nefinu. Sama gildir með sýrnina. Það verður að vera sýrni í víni til að jafnvægið rétt sé og það er eins í kombucha. Kombucha og vín eiga það líka sameiginlegt að það þarf að smakka nokkrum sinnum til þess að kunna að meta, og þegar það er komið þá er erfitt að snúa aftur.

Sjálf trúi ég og tengi sterklega við allt sem er í nánd við mann, hvort sem það er matur, vín eða annað. Ég hef enga þörf á að sækja vín langar leiðir heldur vil ég helst að þetta komi úr moldinni sem maður stendur á. Kombucha frá þeim Rögnu og Manuel uppfyllir þessa nálgun því þetta er íslensk framleiðsla.“

Góð áhrif á heilsuna

Dominique segir einnig forvitnilegt hvernig kombucha verður til. „Þetta er í raun gerjað te. Á meðan ég var í burtu frá Íslandi var mikið rætt á neikvæðum nótum um mansjúríusveppinn sem tröllreið öllu. Voru því margir fordómafullir í garð kombucha þegar það komst aftur í tísku. Ég missti sem betur fer af þessu tali og var fullkomlega fordómalaus þegar ég smakkaði kombucha fyrst. Svo hefur það komið á daginn að kombucha gerir mér afar gott hvað varðar heilsuna. Ég er með sykursýki og þarf að taka ýmis meðöl sem fara mörg hver illa með meltingarveginn. Eftir að ég byrjaði að neyta kombucha að staðaldri tók ég eftir því að meltingarvandamálin löguðust. Ég veit að ég er ekki ein um þetta og þetta er fullkomlega rökrétt, því það sem er gerjað með þessu móti, það fer vel í meltingarveginn, súrsað grænmeti, súrkál eða annað. Fyrri kynslóðir geymdu mat með þessu aðferðum og nutu góðs af gerlunum sem mynduðust við gerjun. Okkar kynslóð hefur smám saman gleymt þessu. Með því að taka þetta upp aftur komum við jafnvægi á kerfið okkar. Við uppfyllum eitthvað sem hefur vantað. Kombucha frá Kombucha Iceland uppfyllir þessa vöntun. Svo er þetta líka svo hentugt. Það er mun auðveldara að drekka tvö glös af kombucha á dag en að neyta heillar súrkálskrukku. Kombucha er ekkert töframeðal enda trúi ég ekki á slíkt. En það hefur raunveruleg áhrif. Það er líka ótrúlegt hvað kombucha býður upp á mikla fjölbreytni í bragði og öðru. Það hefur sýrnina en það er líka hægt að bragðbæta það með ávöxtum.“

Svalandi drykkur

Dominique segist drekka kombucha allt árið, þó meira á sumrin. „Enda er þetta ofboðslega svalandi drykkur. Ætli ég drekki ekki svona tvö glös og upp í eina flösku á dag. Ég er með þrjár flöskur sem ég fylli á hjá einhverjum af þeim áfyllingarstöðum sem Kombucha Iceland býður uppá. Það hentar mér ágætlega því ég er alltaf að leita að leiðum til þess að huga að umhverfinu. Við getum ekki lifað án náttúrunnar og hún ver sig ekki gegn okkur. Því verðum við að hlúa að henni.

Sjálf er ég langhrifnust af Glóaldin kombucha frá Kombucha Iceland. Drykkurinn er í súrari kantinum sem hentar mér vel, því ég sæki í súrt. Það er jafnvægi í bragðinu og ég elska líka nafnið, glóaldin. Einnig er ég hrifin af krækiberjadrykknum frá Kombucha Iceland. Bragðið er í fínu jafnvægi og krækiberin bjóða upp á flókna bragðpallettu af sætu, sýrni og beiskju.“

Getur ekki án þess verið

Dominique segist hvorki vilja vera án kombucha né góðs súrdeigsbrauðs. „Ég sendist glöð milli bæjarhluta til þess að komast í bæði. Ég bý í Árbæ og hef nokkrum sinnum farið alla leið í Kópavog að ná mér í áfyllingu af kombucha. Sama gildir um uppáhaldssúrdeigsbrauðið, það gengur ekki hvað sem er á mínu heimili. Þetta snýst allt um að það sé ást og alúð í hverjum skammti og í hvert sinn sem ég fæ mér sopa af kombucha þá hugsa ég til Rögnu og Manuels. Því ég veit að þau framleiða drykkina sína af einlægni, metnaði og alúð.“

Eftirfarandi aðilar í Reykjavík eru meðlimir í Kombucha Iceland-fjölskyldunni Krónan| Melabúðin| Fjarðarkaup| Heilsuhúsið| Matarbúðin Nándin| Brauð og co. og nú nýlega fáanlegt í Heimkaup.

Einnig fæst Kombucha Iceland í BioBorgara| Kaffihúsi Vesturbæjar| Le Kock| Kaffi Laugalæk| Mr.Joy| Mamá| Te og Kaffi| Systrasamlaginu og á fleiri stöðum.

Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi: Vistvera á Selfossi| Ljómalind í Borgarnesi| Fisk kompaní á Akureyri| Hús handanna á Egilsstöðum og Kaja Organic á Akranesi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum