fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Skapaðu þitt eigið listaverk með Föndurlist

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 20. maí 2020 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Föndurlist Vaxandi er verslun sem sérhæfir sig í að bjóða upp á fjölbreytt úrval af vörum fyrir listafólk á öllum aldri og hæfnisstigum.

Ótal margt er í boði, bæði fyrir byrjendur og lengra komna en helstu vöruflokkarnir eru myndlistarvörur, skartgripagerð, macrame, sápugerð, kertagerð, resin art, alcohol art, fluid art, abstract art, mixed media, hannyrðavörur, pappírsföndur, postulínsmálning, steinamálning, taulitun, slímgerð, krakkaföndur, andlitsmálun, skrautskrift, perluskraut, gyllingar o.m.fl. frá mörgum viðurkenndum gæðamerkjum.

Eðlilega eru ýmis konar myndlistarvörur einna vinsælastar en svo margt spennandi fyrir listamanninn tilheyrir því sviði sem opnar inn á svo margar skemmtilegar og skapandi víddir, allt frá því einfaldasta upp í það flóknasta.

Spennandi sumarleikur

Einmitt núna stendur yfir spennandi sumarleikur þar sem hægt er að vinna námskeið eða startpakka í Alcohol blek art, sem er alveg sérstaklega skemmtileg aðferð til að skapa alls konar listaverk. Allir geta tekið þátt með því að fara á vefsíðuna fondurlist.is og skrá sig.

Allt fyrir myndlistarfólkið

Myndlistafólk getur fundið svo til allt það helsta sem það þarf á að halda, penslar, pappír, teikniblokkir, blýantar, trélitir, tússlitir, vatnsliti, blek, olíumálningu af ýmsum gerðum, vandaða striga og trönur í ýmsum stærðum o.m.fl.

Föndurlist var stofnað 2003, rekið af Brynjari Guðmundssyni og Geirþrúði Þorbjörnsdóttir, og hefur notið sívaxandi vinsælda. Verslun Föndurlistar er staðsett í Strandgötu 75, Hafnarfirði, þar sem hægt er að koma skoða allt úrvalið og fá persónulega aðstoð við vöruval og -notkun.

“Við höfum lagt mikla áherslu á mikið úrval á ódýru verði ásamt reglulegu námskeiðahaldi í ýmsum fönduraðferðum. Fólk er oft að koma til okkar og fá upplýsingar  um hvernig og hvaða aðferðir þarf að nota til að setja saman næsta listaverk. Það veit hvað það langar að gera, en ekki alveg hvaða efni þarf að nota og hvernig það er notað saman.”

Föndurlist býður einnig upp á vefverslunina á www.fondurlist.is sem hentar sérstaklega vel fyrir landsbyggðina, þar sem hægt er að skoða og finna það sem þig vantar og setja í körfuna til að ganga svo frá pöntun í gegnum netið. Ókeypis póstsending á landsbyggðina þegar pantað er fyrir meira en 10.000, en innan höfuðborgarsvæðisins er ókeypis heimsending samdægurs ef keypt er fyrir meira en 5.000 kr. Það er alltaf hægt að hringja beint í Föndurlist (á opnunartíma) í síma 553 1800 varðandi nánari upplýsingar um það sem er í boði.

Reglulega eru haldin verkleg námskeið í ýmsum aðferðum listagerðar, t.d. Resin Art, Macrame hnýtingar, Alcohol Ink Art o.fl. sem yfirleitt selst upp á vegna mikillar aðsóknar.

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Föndurlist, hvað svo sem sköpunarkrafturinn kallar á hverju sinni. Það er svo sannarlega hægt að hafa gaman heima, bæði ein og í hóp.

Njótum þess að skapa. 

Hvaða listaverk býr í þér?

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum