ET Verslun, Klettagörðum 11, er á meðal leiðandi aðila í sölu á ljósabúnaði fyrir ökutæki og vinnuvélar, þar á meðal eru ljóskastarar, vinnuljós og afturljós. Eigendur breyttra jeppa, vinnuvéla og vörubíla eru á meðal helstu viðskiptavina verslunarinnar sem sér þeim fyrir öllum þeim ljósum sem þá vanhagar um og kappkostar að selja gæðaljós undir þekktum merkjum á sanngjörnu verði.
ET Verslun selur framljós, afturljós, hliðarljós, vinnuljós og ljóskastara. Meðal merkja eru bandarísku Rigid-ljósin sem slegið hafa í gegn á Íslandi fyrir frábæra endingu. Einnig má nefna sænska merkið LEDSON sem sérhæfir sig í framleiðslu á díóðuljósum, meðal annars díóðuljóskösturum, vinnuljósum og perum. Vinsælasti kastarinn í dag kallast Pollox og kemur einmitt frá LEDSON, um er að ræða 9“ díóðu(LED)-kastara sem lýsir upp endurskinið á vegstikum í 850 metra fjarlægð.
Nær allir breyttir jeppar eru með aukaljós og eigendur slíkra ökutækja ganga að góðu úrvali og framúrskarandi gæðum í ET Verslun, hvort sem um ræðir kastara, vinnuljós, bakkljós eða inniljós. ET Verslun er þekkt fyrir góða þjónustu við jeppaeigendur og var nýlega með bás á jeppasýningu Ferðaklúbbsins 4X4.
Jafnframt er ljósaúrvalið hjá ET Verslun ekki síðra þegar kemur að hliðarljósum og afturljósum sem eru fáanleg í mörgum stærðum og gerðum.
ET Verslun hefur verið starfandi í yfir 26 ár og hefur því mikla reynslu af þjónustu við bíleigendur og eigendur annarra ökutækja, til dæmis vinnuvéla. Fyrir utan ljósaúrvalið er verslunin framarlega í framboði á vagnavarahlutum, vökvabúnaði og mörgu öðru. Ávallt kappkostar ET Verslun að koma fram með nýjungar sem gagnast eigendum ökutækja vel.
Sem fyrr segir er verslunin til húsa að Klettagörðum 11. Opið er virka daga frá kl. 8 til 18 og laugardaga frá 10 til 14. Sjá nánar á et.is undir Verslun og á Facebook-síðunni ET Verslun.