fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Kombucha Iceland: Hollur að eðlisfari

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 26. ágúst 2019 15:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kombucha Iceland er nú mörgum orðinn kunnugur svaladrykkur en þann 14. ágúst hélt Kombucha Iceland upp á tveggja ára afmæli sitt. Það má því segja að þessi vinsæli og holli gosdrykkur sé kominn til að vera á meðal íslenskra neytenda. „Við hvetjum þá sem hafa ekki enn kynnt sér kombucha eindregið til að gera það. Segja má að kombucha sé meira en bara drykkur, en að baki honum liggur löng saga. Drykkurinn hefur marga góða eiginleika og Kombucha Iceland er eins lítið sætt og við komumst upp með, enda er drykkurinn hollur að eðlisfari og engin ástæða til þess að sæta hann um of og gera hann þannig óhollan,“ segir Manuel Plasencia Gutiérrez, annar eigenda Kombucha Iceland og framkvæmdastjóri Kúbalúbra ehf.

Dularfullur heilsudrykkur með heillandi sögu

Fyrir þá sem ekki vita er kombucha stórmerkilegur svaladrykkur. Um er að ræða gerjaðan tedrykk sem kemur líklega frá Asíu til forna. „Helsta vísbendingin um uppruna drykkjarins er að hann er bruggaður úr telaufum sem eru upprunnin frá því landsvæði,“ segir Manuel. Fjölmargar frásagnir eru til um að kombucha hafi hjálpað til við að laga ýmsa líkamlega og andlega kvilla. „Ég er fyrst og fremst vísindamaður og set ekki fram neinar staðhæfingar um heilsufarslegan ávinning kombucha, en get þó sagt að drykkurinn hefur hjálpað til við meltingarvandamál hjá mér persónulega. Kombucha er ógerilsneyddur, eins og við framleiðum hann, sem þýðir að í honum er að finna mikið af góðum gerlum sem hafa góð áhrif á þarmaflóruna. Einnig hefur kombucha jafn góð áhrif á líkamann og te, enda er drykkurinn í grunninn unninn úr te. Þetta er það eina sem ég get staðhæft um heilsuáhrif kombucha, því annað er óstaðfest af vísindasamfélaginu,“ segir Manuel.

Kombucha Iceland
Manuel fær sér kombucha. ©Silja Rut Thorlacius.

Það er ekki seinna vænna að skipta út næringarsnauðu sykurgosinu fyrir hollt og svalandi kombucha. Kombucha Iceland kemur í mörgum spennandi bragðtegundum sem eru hver annarri betri; rauðrófu, spirulina, krækiber, glóaldin, engifer, jarðarber, rabarbara-vanilla, original, mynta og krækingifer. „Svo erum við alltaf að prófa nýjar bragðtegundir svo það er spennandi að fylgjast með.“

Hvernig verður kombucha til?

Kombucha Iceland er lagað með því að brugga lífrænt, sætt te. Næst er teið gerjað í allt að sex vikur með örveruþyrpingu sem kallast scoby (Symbiotic Colony of Bacteria and Yeast). Scoby étur upp sykurinn, vökvinn gerjast og kombucha-drykkurinn verður til. Notaðir eru ferskir ávextir til að bragðbæta og bæta við næringargildið, síðan er hann gerjaður í annað sinn í flöskunni. Þá myndast létt kolsýra í drykknum. „Kombucha er súr drykkur sem minnir eilítið á edik. Sumir þurfa að venjast bragðinu fyrst, en þeir sem komast upp á bragðið elska kombucha til æviloka enda er drykkurinn svalandi og bragðgóður,“ segir Manuel.

Fjölskyldufyrirtæki sem er annt um náttúruna

Kombucha Iceland er lítið fjölskyldufyrirtæki rekið af hjónunum Manuel Plasencia Gutierrez og Rögnu Björk Guðbrandsdóttur. „Þegar mikið liggur við hjálpa fjölskyldumeðlimir og vinir til. Við byrjuðum að framleiða kombucha fyrir tveimur árum og fyrst var aðeins hægt að fá það á krana hjá fáeinum aðilum. Þá gat fólk komið með eigin flösku og fyllt á. Í dag er hægt að fá Kombucha Iceland á krana hjá Frú Laugu í Laugardal, Sólir jóga úti á Granda, Mamma veit best í Kópavogi og nú nýlega í Litlu Hönnunarbúðinni í Hafnafirði.

Manuel Plasencia Gutiérrez og Ragna Björk Guðbrandsdóttir.

Þetta er umhverfisvænn og ódýrari kostur. Fólk mætir með eigin flöskur og minnkar því sóun á umbúðum. Einnig gerum við margar tilraunir með bragðsamsetningu og koma þær tilraunir fyrst á krana. Ef það bragð heppnast vel og fólk er hrifið, þá setjum við bragðið á flöskur. Við erum meðlimir í Kombucha Brewers International, sem eru alþjóðleg samtök kombucha-bruggara um allan heim. Okkar markmið er að gera kombucha aðgengilegra á Íslandi og í dag er hægt að fá vöruna okkar hjá fjölda aðila,“ segir Manuel.

Hægt er að fá Kombucha Iceland hjá eftirfarandi endursöluaðilum:

Í Krónunni, Melabúðinni, Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Brauði og co. og 10-11.

Einnig eru nokkrir veitingastaðir og kaffihús sem bjóða upp á Kombucha Iceland líkt og: Reykjavík Roasters, Gnægtarhornið, Bio Borgari, Luna Flórens, Gló, Kaffi Laugalækur, Háma, Hipster, Lamb Street Food, Happ, Garðurinn, Reykjavík Roasters, Kaktus Expresso, Yndisauki, Tíu Sopar, Café Roma og Fylgifiskar.

Einnig eru nokkrir sölustaðir úti á landi: Í Leifsstöð, Hjá Höllu í Grindavík, Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi, Kaja Organic á Akranesi, Búðarnes á Bolungarvík og Fisk Company á Akureyri.

„Við erum alltaf að leita að nýjum endursöluaðilum og okkur langar að fólk geti nálgast Kombucha Iceland hvar sem er á landinu.“

Nánari upplýsingar á kubalubra.is og facebooksíðunni Kombucha Iceland

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum