Allt Fasteignir er framsækin hágæðafasteignasala sem leggur áherslu á ánægjuvog bæði kaupenda og seljenda. Einnig leggur fasteignasalan mikið upp úr heiðarleika, öryggi og nákvæmni í öllum vinnubrögðum. „Það er þess vegna sem fólk leitar til okkar þegar það vill selja eða kaupa. Það treystir okkur því við veitum einfaldlega góða þjónustu,“ segir Kristinn Sigurbjörnsson, eða Kiddi eins og hann er alltaf kallaður, löggiltur fasteignasali hjá Allt Fasteignum.
Þrátt fyrir ungan aldur er Kiddi reynslubolti enda er hann einnig löggiltur húsasmíðameistari, byggingarstjóri, hefur leyfi til eignaskiptasamninga og er í námi í byggingafræði í Háskólanum í Reykjavík. „Frá unglingsaldri hef ég unnið við byggingar og tekið að mér bæði smá og stór verkefni. Ég hef tekið að mér ástandsskoðun fasteigna og er á skrá dómstóla yfir dómskvadda matsmenn í fasteignageiranum. Reynsla mín hefur verið mér og viðskiptavinum mínum ómetanleg við fasteignasölu og í öllu því sem henni fylgir,“ segir Kiddi.
Starfstöðvar víða
„Við erum aðallega með fasteignir til sölu en tökum þó að okkur leiguhúsnæði víða um land. Okkar starfstöðvar á Íslandi eru í Reykjavík, Reykjanesbæ, Grindavík og Vestmannaeyjum. Hjá fasteignasölunni starfa sex löggiltir fasteignasalar sem allir sjá um sína starfsstöð, og Elínborg Ósk Jensdóttir sem starfar sem lögfræðingur hjá okkur. Arndís María Kjartansdóttir sér þá um starfsstöðina í Vestmannaeyjum, Páll Þorbjörnsson, löggiltur fasteignasali, fiskeldisfræðingur og með réttindi til eignaskiptayfirlýsinga, er í Grindavík og Þorbjörn Pálsson, faðir Páls, er í Reykjanesbæ ásamt Gunnari Ólafssyni. Einnig sér Þorbjörn um erlendu eignirnar okkar, ásamt Páli, í gegnum Sólareignir sem rekið er af Allt Fasteignum.
Að auki eru fjórir aðrir starfsmenn hjá okkur og þar af ein sem aðstoðar á skrifstofu og við auglýsingamál. Svo eru þrír nemar en tveir af þeim útskrifast á næstu mánuðum sem löggiltir fasteignasalar. Í sumar verða því alls átta löggiltir fasteignasalar starfandi hjá fasteignasölunni. Á Spáni eru Sólareignir með skrifstofu í miðbæ Torrevieja ásamt því að vera með sölusamninga í Portúgal, á Tenerife á Spáni og í Orlando og mikilvægt er að vera með löggiltan fasteignasala í því ferli.“
Leggja metnað í framsetningu eigna
„Ég útskrifaðist í fyrra sem löggiltur fasteignasali en byrjaði að vinna hjá Allt Fasteignum fyrir tveimur árum. Sjálfur er ég nú yfir starfsstöðinni í Reykjavík og erum við með töluvert af fallegum og góðum eignum á skrá hjá okkur þar. Við erum með fasteignir í öllum stærðum, gerðum og verðflokkum, hvort sem um er að ræða heimili, sumarbústaði, skrifstofur eða atvinnuhúsnæði. Við leggjum einnig mikinn metnað í framsetningu og kynningu á eignum sem eru til sölu eða leigu hjá okkur. Það er hagur okkar og viðskiptavina okkar að eignir séu settar fram á faglegan og lýsandi máta,“ segir Kiddi að lokum.
Nánari upplýsingar má finna á alltfasteignir.is
Sími: 560-5500
Kiddi, beinn sími: 612-3524 og netfang: kristinn@alltfasteignir.is
Páll, beinn sími: 426-555 og 698-6655 og netfang: pall@alltfasteignir.is
Netpóstur: alltfasteignir@alltfasteignir.is