fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

HÚÐIN skin clinic: Ljómandi húð sem geislar af heilbrigði

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 3. desember 2019 10:00

Ljósmyndari: Saga Sig. Frá vinstri eru: Drífa, Esther, Lára, Sigríður Arna, Rakel og Arndís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við hjá HÚÐIN skin clinic fögnum fjölbreytileikanum og vonum innilega að sem flestir hafi áttað sig á að birtingarmynd útlits á samfélagsmiðlum er víðs fjarri raunveruleikanum. Það er ekkert til sem heitir fullkomin húð. Sumir njóta þess þó að húðin helst frekar slétt og fín fram á efri ár á meðan aðrir fá snemma öldrunareinkenni eða húðvandamál. Við höfum öll eitthvað sem við getum verið hreykin af og gott er að minna sig á það sem gott er. Við hjá Húðinni leggjum áherslu á að vinna með það sem hver og einn hefur og bæta, en ekki breyta náttúrulegu útliti.

Undanfarinn áratug hefur orðið vitundarvakning um hversu margt er hægt að gera til að auka heilbrigði húðarinnar. Sú vinna – ef vinnu skyldi kalla – byrjar heima og því fyrr sem hún hefst, því betra. Auk þess hefur heilbrigður lífsstíll heilmikil áhrif þegar kemur að heilbrigði og útliti húðarinnar, og er sú vísa aldrei of oft kveðin! Við hjá Húðinni heyrum frá okkar frábæru viðskiptavinum hversu vel upplýstir Íslendingar eru orðnir um skaðsemi sólarinnar fyrir húðina og það þykir okkur virkilega ánægjulegt.

Hvort sem húðin hefur fengið þá umönnun og næringu í gegnum tíðina sem hún þarf eða verið vanrækt, geta nærandi krem og húðmeðferðir sem henta hverjum og einum hjálpað heilan helling. Við leggjum metnað í að auka sífellt við þekkingu okkar og leggjum áherslu á að vera með nýjungar, bæði í meðferðum sem og að taka inn nýjar vörur. Meðal annars er von á nýjung hjá okkur eftir áramót. Við vitum öll að það eru ekki til neinar töfralausnir, en það er svo sannarlega hægt að gera heilmargt til að hressa upp á húðina.

Ef þú ert ekki viss um hvaða meðferð hentar er einfalt að panta tíma hjá okkur í ráðgjöf. Við skoðum í sameiningu hverju þú ert að leita eftir og hvaða meðferðir henta þér. Við leggjum áherslu á að taka vel á móti viðskiptavinum okkar svo að þeim líði vel hjá okkur og nái að slaka á. Við bjóðum upp á meðferðir sem sýnt hefur verið fram á að skili tilætluðum árangri,“ segir dr. Lára G. Sigurðardóttir, læknir hjá HÚÐIN skin clinic.

55 ára kona sem hefur af og til komið til okkar húðmeðferðir síðastliðin tvö ár

Það er frábær hugmynd að gefa bætta húðheilsu í jólagjöf!

Gjafabréf í húðmeðferðir hjá HÚÐIN skin clinic hafa notið mikilla vinsælda allan ársins hring og þá sérstaklega fyrir jólin þar sem sú hugmynd er kærkomin í allt of algengum vandræðum fólks við að finna hina fullkomnu gjöf fyrir manneskjuna sem  á allt,“ segir Sigríður Arna, hjúkrunarfræðingur hjá HÚÐIN. „Við finnum mjög mikið fyrir því að fólki líkar orðið sífellt betur að gefa ástvinum sínum gjafabréf (til dæmis í húðmeðferðir) og upplifun í jólagjöf, frekar en að auka á hið sístækkandi safn hluta sem flestir virðast eiga nóg af. Að líða vel í húðinni er ómetanleg tilfinning og alltaf notalegt að gefa gjöf sem stuðlar að vellíðan fólksins okkar,“ segir Sigríður Arna og bendir á að í desember bjóðist gjafabréf frá HÚÐIN skin clinic með 15% afslætti.

Aðspurð hvort Kertasníkir hafi eitthvað leitað á náðir þeirra hjá Húðinni undanfarin ár, þá svarar Sigríður Arna því bæði fljótt og vel: „Já! Hann er eldklár þessi sveinn sem síðastur kemur til byggða!“ segir hún brosandi og bætir við að hann sé líka alveg með það á hreinu að í desember bjóðist gullfalleg gjafabréf frá Húðinni með 15% afslætti.

 

Laser fyrir framtíðina

Fljótlega eftir 25 ára aldur byrjar kollagen að minnka í húðinni um 1% á ári en kollagen er það sem gefur húðinni styrk og heldur henni unglegri. Á fyrstu fimm árum tíðahvarfa konunnar minnkar kollagenframleiðsla enn hraðar, eða um 30%. „Húðin er eins og vöðvarnir okkar að því leyti að líkt og við förum í leikfimi til að styrkja vöðvana þá er hægt að byggja upp húðina með ýmsum leiðum. Öflugasta meðferðin til að hægja á öldrunarferlinu er laserlyfting sem er oft þekkt sem andlitslyfting án skurðaðgerðar. Laserlyfting er vísindalega viðurkennd meðferð og sýna rannsóknir ótvíræðan árangur. Meðferðin örvar nýmyndun kollagens og elastíns í húðinni, jafnar áferð, þéttir húðina og fækkar andlitslínum þannig að húðin verður unglegri og heilbrigðari.“

Cinderella húðþétting

Þessi vinsæla meðferð eykur þéttni og ljóma í húð og kemur árangur strax fram. Meðferðin byggir á innrauðri tækni sem hefur verið vinsæl í Bandaríkjunum og á Bretlandi. Húðin er hituð upp í ákveðið hitastig í nærinnrauðu ljósi. Meðferðin setur ferli af stað sem örvar frumurnar í framleiðslu á kollageni. „Meðferðin skilar þéttari húð og við mælum sérstaklega með henni fyrir þá sem vilja smá „búst“ fyrir sérstök tilefni, eins og hátíðirnar.“

Húðslípun til að fríska upp á húðina

Húðslípun (e. microdermabrasion) er vinsæl meðferð hjá ungu fólki enda vinnur hún gegn bólum og fílapenslum ásamt því að fríska upp á húðina. Notað er demantshúðslípunartæki sem fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun ysta lags húðarinnar. Meðferðin gerir húðina sléttari og jafnar litaáferð auk þess sem hún virkar á þurra húð og gefur aukinn ljóma.

Lára segir að samhliða meðferðum leggi stofan áherslu á hvað fólk geti gert sjálft til að hlúa vel að húðinni enda hefur lífsstíll mikið að segja um hvernig húðin stenst tímans tönn.

 

Fyllt upp í djúpar línur með áhrifaríkum hætti

Notkun á Restylane fylliefnum til að minnka og fjarlægja djúpar línur í húðinni er ein vinsælasta húðmeðferðin í dag enda algengt að heyra hve úthvíldur maður sé eða líti vel út eftir þessa meðferð. Restylane, sem er gert úr náttúrulegu rakaefni húðarinnar, er sett rétt undir húðina og við það sléttist úr henni, línur hverfa eða verða minna sýnilegar. Restylane er einnig vinsælt efni til að setja í varir eða kinnbein til að gefa meiri fyllingu, sérstaklega ef hún hefur minnkað með aldrinum.

Hér var notað 1 ml af Restylane Lyft fylliefni í fellinguna frá nefi að munnvikum.

 

Hér var notað Restylane fylliefni til að lyfta munnvikum og gefa smá fyllingu í varir.

Sársaukalaus háreyðing með laser

Háreyðing með laser er ein vinsælasta meðferðin hjá Húðinni bæði hjá körlum og konum. Rakstur og vax valda oft inngrónum hárum og hverfur það vandamál oft á tíðum eftir lasermeðferð. Lasermeðferðin eyðir hvimleiðum hárum varanlega eða í lengri tíma.

Á vandaðri heimasíðu HÚÐARINNAR hudin.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar meðferðir.

Húðmeðferðarstöðin HÚÐIN skin clinic býður upp á fjölbreyttar húðmeðferðir og faglega þjónustu. Þar starfa dr. Lára; Sigríður Arna Sigurðardóttir, hjúkrunar- og förðunarfræðingur, Drífa Ísabella Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur, Arndís Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur, Rakel Guðmundsdóttir móttökuritari og Esther Helga Ólafsdóttir, móttökuritari og snyrtifræðingur.

Facebook: Húðin

Instagram: Húðin.is

Einnig eru veittar upplýsingar í síma 519-3223.

HÚÐIN skin clinic er í Hátúni 6b, 105 Reykjavík.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum