fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Geggjaðar jólagjafahugmyndir frá Mi Iceland!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 22. nóvember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir miðbæjarrottuna

Mi Electric Scooter er eitt vinsælasta rafmagnshlaupahjólið um allan heim. Hlaupahjólið er úr sams konar áli og notað er í flugvélar. Það inniheldur öflugan rafmagnsmótor sem kemst allt að 25 km/klst hraða og 250Wh rafhlöðu sem skilar allt að 30 km á sléttum jarðvegi. Auðvelt er að brjóta hjólið saman og taka með í strætó og fara á milli í miðbænum! Fæst í svörtu og hvítu.

69.990 kr.

Jólahjólið í ár!

QiCycle Folding Electric Bike er lítið og nett rafmagnshjól útbúið fjölda snjallra eiginleika. Einfalt er að brjóta hjólið saman og því er það fullkomið borgarhjól sem auðvelt er að stinga í skottið á bílnum. Hjólið er búið öflugri Panasonic 18650 mAh Li-ion rafhlöðu sem er sams konar og sú sem notuð er í hina byltingarkenndu Tesla-bíla. Skjár á stýrinu gefur þér upplýsingar um hraða, vegalengd og stöðu rafhlöðu. Þar getur þú stillt hversu mikið mótorinn vinnur til móts við þig. Hjólið er létt og fyrirferðarlítið og vegur aðeins 14,5 kíló.

169.990 kr.

Þekkir þú einhvern sem langar að hlaupa maraþon?

Amazfit Stratos snjallúrið er algjör skyldueign fyrir alla þá sem stunda líkamsrækt. Skjárinn er varinn með 2.5D Gorilla Glass og er skífan úr handpússaðri keramík. Úrið sjálft er síðan allt varið með þríviddarprentuðu Carbon-Fibre. Með 5-ATM er úrið vatnshelt niður á allt að 50 metra dýpi og því tilvalið í sundferðina. Úrið fylgist alltaf með hreyfingu þinni og hjartslætti og býður upp á 16 mismunandi stillingar, sérstaklega hannaðar fyrir t.d. innanhúshlaup, útihlaup, hjólreiðar, sjósund, skíði, tennis og fótbolta. Nýja Amazfit Watch 2.0 snjallforritið safnar svo saman öllum upplýsingum frá úrinu og birtir á einfaldan og notendavænan hátt. Þar geturðu séð mælingar langt aftur í tímann á skrefum, hreyfingu og svefni.

29.990 kr.

Nútíminn er mættur í eyrun!

Einfaldleiki og tækni sameinast á einstakan hátt í Mi True Wireless Earbuds Basic og útkoman er töfrum líkust. Við fyrstu notkun tengjast heyrnartólin við símann eða tölvuna á einfaldan hátt. Eftir það kviknar einfaldlega á þeim þegar þau eru tekin úr hleðsluboxinu og tengjast tækinu sjálfkrafa. Með því að þrýsta á takka á heyrnartólunum getur þú þannig svarað símtölum, skipt um lag, tengt þig við Google Assistant ef þú ert með Android-síma eða Siri ef þú ert með Apple-síma og notað raddstýringu til þess að framkvæma aðgerðir. Búnaður í hljóðnemum tryggir að þeir útiloka umhverfishljóð og nemi rödd þína sem best. Sama á við þegar hlustað er á tónlist. Heyrnartólin sía burt umhverfishljóð fyrir fyrsta flokks hljómgæði.

8.990 kr.

Bíósalur heima í stofu!

Mi Laser Projector 150″ er hágæða skjávarpi sem varpar mynd í allt að 150 tommur og færir þér þannig bíósalinn heim í stofu! Hvít umgjörð með mjúkum hornum gerir skjávarpann að fallegu húsgagni sem þú vilt helst hafa sýnilegt í stofunni. Skjávarpinn varpar mynd með notkun á laser sem þýðir minna viðhald og lengri endingartími. Skarpari litir, svartari svartur, einstaklega björt mynd og meiri hraði í ræsingu eru helstu kostir þess að vera með lasermyndvarpa.

289.990 kr.

Netflix og „tjill“ er ekkert vandamál með Mi Box S

Mi Box S er eitt sniðugasta tækið á heimilið. Tækið er tengt við sjónvarpið með HDMI-snúru og því er stjórnað með lítilli fjarstýringu. Með þessu tæki getur þú á einfaldan hátt notað forrit eins og Netflix, Plex, Kodi, Youtube og Spotify.

9.990 kr.

Er vinur þinn alltaf þakinn hundahárum? Ekki lengur!

Robot Vacuum sér um þrifin á meðan þú ert að heiman. Hægt er að setja upp áætlanir fram í tímann, stilla kraft sugunar (og með því hávaða). Ryksugan kortleggur rýmið með 360° laserskynjara og þú getur fylgst með í rauntíma hvar ryksugan er, hversu mikið er búið og hvað er eftir í gegnum smáforritið Mi Home. Ryksugan sér svo sjálf um að setja sig í hleðslu eftir notkun eða þegar rafhlaðan er að verða tóm.

49.990 kr.

Skoðaðu úrvalið nánar á vefverslun mii.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum