fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Kynning

myPOS: Byltingarkennd posa-lausn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 15. nóvember 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greiðsluþjónustan myPOS er byltingarkennd nýjung í fjártæknigeiranum, sérhönnuð fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.

Engin þörf á þriðja aðila

myPOS hóf að veita greiðsluþjónustu árið 2014 og hefur síðan vaxið gríðarlega hratt og er í dag með um 100.000 viðskiptavini víðs vegar um Evrópu. myPOS hóf að veita þjónustu á Íslandi í upphafi árs 2017 við mjög góðar undirtektir. myPOS er í raun og veru allt í einum pakka, það er bæði færsluhirðir og rafeyrisfjármálastofnun. Viðskiptavinurinn fær posa, rafeyrisreikning í öllum þeim gjaldmiðlum sem honum hentar og debetkort tengt reikningnum. Þannig er engin þörf á þriðja aðila eða bankastofnun til að móttaka greiðslur frá færsluhirðinum.

 

Fjöldi verðlauna

myPOS hefur á aðeins fimm árum unnið til fjölda verðlauna fyrir greiðsluþjónustuhugbúnað sinn og notendavænan heimabanka. Núna í febrúar var myPOS valið besta POS nýsköpunin í greiðsluþjónustu og besta hugbúnaðarlausn í heimabanka af Merchant Payment Ecosystem (MPE Award). myPOS var jafnframt tilnefnt sem einn af þremur bestu færsluhirðum í Evrópu.

myPOS Mini Ice er ótrúlega handhægur.

Engin mánaðargjöld

myPOS sker sig úr með tvennum hætti. Viðskiptavinurinn kaupir posann og þarf því ekki að borga mánaðarleg leigugjöld til eilífðar, eins og hefur verið hefðin á Íslandi. Þannig getur viðskiptavinurinn sparað sér háar fjárhæðir til lengri tíma litið og hreinlega borgað upp posann með eins mánaðar leigu ef hann kaupir myPOS Go posann sem kom í sölu fyrr á þessu ári.

 

Gert upp samstundis

Þar að auki gerir myPOS upp samstundis bæði debet- og kreditkortafærslur, sem enginn annar býður upp á. Greiðslan er aðeins sekúndur að skila sér frá posanum inn á myPOS-reikninginn þar sem viðskiptavinurinn hefur samstundis aðgang að fjármunum sínum með því að nota debetkortið sem fylgir reikningnum. Einnig getur viðskiptavinurinn millifært af myPOS-reikningnum til annarra fjármálastofnana um allan heim og móttekið greiðslur með sama hætti og aðrir hefðbundnir bankareikningar.

Þurfa ekki að gefa upp kortaupplýsingar í gegnum sína

myPOS er kjörin lausn fyrir ferðamannageirann. Viðskiptavinurinn getur sent greiðslubeiðni eða tekið símgreiðslu í hvaða mynt sem er. Greiðslubeiðni er veflinkur sem þú sendir til greiðandans þar sem hann fyllir út sínar kortaupplýsingar sjálfur, en í dag eru margir sem eru feimnir við að gefa upp sínar kortaupplýsingar í gegnum síma.

 

Hafðu verðskrána í dollurum, evrum, pundum …

Ef greiðandinn vill borga í EUR eða USD, þá getur þú sent greiðslubeiðni úr símaappinu í þeirri mynt sem greiðandinn vill borga í. Þú færð síðan greiðslubeiðnina gerða upp í þeirri mynt sem hentar þér. Þannig getur þú haft verðskrána þína í dollurum fyrir Bandaríkjamenn, evrum fyrir Evrópubúa og í pundum fyrir Breta. Hefðbundnar símgreiðslur (MOTO) getur þú einnig rukkað í hvaða mynt sem er í gegnum símaappið eða beint í gegnum heimabankann.

 

Tilvalið fyrir innflutningsaðila

myPOS er einnig tilvalin lausn fyrir innflutningsaðila. Þeir geta þá stillt sjálfan posann í ISK en fengið uppgert í hvaða mynt sem hentar hverju sinni. Þannig er hægt með einu handtaki að breyta uppgjörsmyntinni úr ISK í EUR ef þarf að safna evrum fyrir næstu innkaup. Jafnframt er hægt að færa gjaldeyri á milli gjaldeyrisreikninga eftir þörfum hverju sinni.

Allir posarnir koma með fríu 3G-símkorti og virka hvar sem er. Þá einnig hægt að tengja þá við WiFi. Hægt er fá posa með snertiskjá (Smart N5), þann klassíska með útprentun (Combo 210) eða lítinn og nettan sem er minni en iPhone og án prentara (Mini Ice).

 

Komið til að vera!

Eftir frábæra byrjun liggur nokkuð ljóst fyrir að myPOS er komið til að vera sem nýr valkostur sem greiðsluþjónustuaðili fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja nútíma greiðsluþjónustu.

Nánari upplýsingar má finna á posinn.is eða skrifstofu myPOS að Suðurlandsbraut 6.

Netfang: mypos@mypos.is

Sími: 571-7510

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7