fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Nuddstofan Costa Verde: Augnablik til að slaka á

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 4. október 2019 12:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nuddstofan Costa Verde sem er í glæsilegu húsnæði í Grafarvoginum býður upp á fyrsta flokks nuddmeðferðir framkvæmdar af reyndum nuddurum.

Mynd: Eyþór Árnason

Margar mismunandi nuddmeðferðir eru í boði hjá Costa Verde, allt frá slökunarnuddi til heilandi meðferða. „Hjá okkur er sérhver nuddmeðferð löguð að þörfum viðskiptavinarins sem og þjálfun og hæfileikum þess sem hana veitir,“ segir Josy Zareen hjá Costa Verde.

Við bjóðum upp á fjölbreyttar nuddmeðferðir:

  • Klassískt nudd
  • Djúpvefjanudd
  • Slakandi bakmeðferðir, sérhannaðar fyrir fólk með bakvandamál.
  • MA-URI® Bodywork heilnudd. NÝTT
  • Japanskt nudd
  • Taílenskt nudd

Costa Verde býður upp á margar mismunandi og áhrifaríkar nuddmeðferðir sem ætlað er að taka á mismunandi vandamálum sem hrjá hvern og einn. Nýjasta meðferðin nefnist MA-URI® Bodywork.

MA-URI® Bodywork nuddmeðferðin er heilandi líkamsnudd í bland við listheilun. Meðferðin kemur frá maóría-frumbyggjum í Nýja-Sjálandi og Havaí. Um er að ræða heilnudd með olíu þar sem nuddþerapistinn notar mestmegnis framhandleggi og nuddar í takt við heilandi tónlist. Nuddmeðferðaraðilinn er í stöðugu hreyfingarflæði sem fylgir fyrirframákveðnu fótleggja- og líkamsstöðumynstri. Nuddarinn nær með hreyfingu sinni og nuddmynstri að veita móttakandanum djúp kennsl. Framhandleggir nuddarans sveipast um líkamann í löngum strokum í takt við tónlistina og framleiða stöðugt orkuflæði sem hjálpar til við að losa líkamsminningar. Á sama tíma virkjar nuddið innbyggðan heilunarmátt líkamans og fyllir hann af lífi. Nuddið snertir jafnt á tilfinningalegum, huglægum og andlegum veruleika tengsla, heiðarleika, heilleika og samhljóms,“ segir Josy.

Mynd: Eyþór Árnason

Japanska nuddið byggir á teygjum og þrýstipunktanuddi sem stuðlar að bættri almennri heilsu. Um er að ræða heildræna nuddmeðferð sem tekur á hinum ýmsu kerfum líkamans svo sem sogæða-, tauga-, hormóna- og blóðrásarkerfinu. „Japanskt nudd hjálpar til við að koma í veg fyrir sjúkdóma og er í mörgum tilfellum áhrifarík meðferð gegn þeim. Auk þess eykur nuddið færni líkamans í að lækna sig sjálfur.“

Mynd: Eyþór Árnason

Hefðbundið taílenskt nudd er ævafornt og fjölbreytt heilunarkerfi sem tvinnar saman bæði einangraða og breiða notkun á þrýstipunktanuddi, notkun á jógastellingum með aðstoð sem og örvun og meðhöndlun á sen-orkulínum. „Líkaminn liðkast til og liðir opnast, teygt er á vöðvum og sinum, líffæri eru mótuð og orka er færð í jafnvægi.“

Mynd: Eyþór Árnason

Ef streita og þreyta þjaka þig þá getum við hjálpað þér að finna jafnvægi og vellíðan á ný.

Í meðferðum okkar notum við aðeins sérvalin vörumerki sem við treystum.

 

Nánari upplýsingar má nálgast á costaverde.is

Facebook: Costa Verde Nuddstofan

Opið er alla virka daga klukkan 9.00–21.00 og laugardaga klukkan 10.00–20.00.

Nuddstofan Costa Verde er að Hverafold 1–3, „Foldatorgi“, Grafarvogi.

Bókaðu á vefsíðunni okkar eða í síma: 519-8222 / 789-6543

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum