Glænýr Ford Ranger verður frumsýndur laugardaginn 5. október í Brimborg, bæði í Reykjavík og á Akureyri frá 12-16.
Nýr fjórhjóladrifinn Ford Ranger, mest seldi pallbíll í Evrópu, er loksins kominn. Hann er sérlega sterkbyggður fyrir allskonar verkefni hvort sem er í vinnu eða áhugamálin og er nú með enn meiri tækni en nokkru sinni fyrr. Hann er einstaklega öflugur og öruggur á erfiðum vegum og slóðum, hár frá vegi með 23,7 cm veghæð og vaðdýptin er 80 cm og það er lítið mál að skipta á milli framdrifs og fjórhjóladrifs.
Ford Ranger er einstaklega sterkur með burðargetu upp á 1 tonn og dráttargetu með krók allt að 3.500 kg. Hann er sterkbyggður og í innra rými er notast við gæðaefni sem eru traust og endingargóð og þola þannig mikið álag. Hann er líka þægilegur í daglegri umgengni með geymsluhólf fyrir mat, glasa/flöskuhaldara, bakka fyrir litla hluti og pláss fyrir farsíma, auk þess sem það eru tvö stór geymslusvæði undir aftursætunum. Hanskahólfið getur geymt 15” fartölvu, stutta regnhlíf og fleira.
Í fyrsta skipti er Ford Ranger með innbyggðu FordPass Connect. Með því kerfi er hægt að opna og læsa bílnum, gangsett hann og tengt WiFI hotspot. Öryggisbúnaðurinn er einnig mjög mikill, þar má nefna árekstrarvari sem nemur einnig gangandi og hjólandi vegfarendur, veglínuskynjari, umferðaskiltalesari, hraðastillir með takmarkara o.m.fl.
Ford Ranger verður fáanlegur í þremur búnaðarútfærslum eða Raptor og Wildtrak með 213 hestafla sparneytinni dísilvél sem togar 500 Nm og nýrri háþróaðri 10 gíra sjálfskiptingu og XL útgáfu með 170 hestafla sparneytinni dísilvél sem togar 420 Nm og 6 gíra beinskiptingu.
Ranger Wildtrak Double Cab 4×4 sjálfskiptur verð frá 7.690.000 kr.
Ranger Raptor Double Cab 4×4 sjálfskiptur, verð frá 9.990.000 (sérpöntun)
Ranger XL Double Cab 4×4 beinskiptur, verð frá 6.490.000 (sérpöntun)