fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Kynning

Fjölskyldu- og húsdýragarðinum: Allan ársins hring

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 20. september 2019 13:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, sama hvernig viðrar. „Þegar sólin skín og Kári fer í frí er gaman ganga um garðinn og skoða haustlitina, leika sér í útileiktækjum, kasta kveðju á dýrin sem eru úti að leika sér og grilla haustpylsur. Þegar kólnar er fátt skemmtilegra en að skjótast á milli húsa og kíkja á húsdýrin inni í stíunum, forvitnast um minka og refi og leita að förustöfum í felubúningi. Garðurinn er sívinsæll hjá fjölskyldum enda upplifir maður alltaf eitthvað nýtt í hverri heimsókn,“ segir Unnur Sigurþórsdóttir, verkefnastýra nýsköpunar-, fræðslu- og umhverfisdeildar Fjölskyldu- og húsdýragarðs.

Unnur fyrr í sumar með eina gullfallega geit í fanginu.

Lyktsterkar geitur og hreindýr á fengitíma

„Eitt af því sem dregur dýraunnendur að þessa dagana eru geiturnar, en lyktin í geitastíunni verður sterkari með hverjum deginum. Lyktin orsakast af því að fengitími geitanna nálgast og þá fara geiturnar að gefa frá sér sterka hormónalykt. Sama á við um hreindýrin, en fengitími þeirra nálgast óðfluga.“

Mynd: Eyþór Árnason

Hornin tákna valdastöðu

Þegar nær dregur jólum fara undarlegir hlutir að gerast hjá hreindýrunum. „Að loknum fengitíma hjá hreindýrum í nóvember/desember fellir tarfurinn hornin.  Hormónið testosterón stjórnar vexti hornanna og allt miðast við að hornin séu fullvaxin og hörðnuð þegar fengitími hefst í október. Hornin tákna valdastöðu dýranna innan hjarðarinnar og dýrið með stærstu hornin ræður mestu. Að loknum fengitíma þegar tarfurinn stendur uppi hornlaus ráða simlurnar ríkjum, enda enn með sín horn fram á næsta vor.“

Mynd: Eyþór Árnason

Sísvalir selir

Selirnir í Húsdýragarðinum eru alltaf jafnhressir. „Selirnir Kobba, Snorri og Særún hafa verið í garðinum frá upphafi og eru því komnir til ára sinna en hafa alltaf haft mikið aðdráttarafl. Nú þegar farið er að kólna taka þau hraustlega til matar síns enda þurfa selir að bæta á spiklagið til að þola aukinn kulda.“

Mynd: Eyþór Árnason

Skemmtileg leiktæki opin allt árið um kring

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga ársins þó þjónustustigið sé breytilegt eftir árstíðum. Þegar hausta tekur er reynt að hafa leiktækin í Fjölskyldugarðinum opin um helgar þegar viðrar til þess. Fjölmörg leiksvæði þurfa þó hvorki starfsmanna við né traust og gott veður og eru því aðgengileg alla daga ársins. Þar má til dæmis nefna ævintýralega leikkastalasvæðið Þrúðvang, danstækið Dansleik sem hefur að geyma nokkrar stærðfræðiþrautir, Minnissvæði sem reynir á minnisgáfur og snerpu, og svo vatnsleikjasvæðið Iðavelli. Þá má njóta útsýnis úr turninum Skyggni og renna sér á línu á Hlaupakettinum.

Mynd: Eyþór Árnason

Nýtt grillsvæði tekið í gagnið í Fjölskyldugarðinum og lengdur opnunartími

Grillsvæðið í Fjölskyldugarðinum er nú í allsherjar yfirhalningu og verður ný útieldunaraðstaða tekin í gagnið á næstunni og verður hún opin allan daginn. Á miðvikudögum verður m.a. áfram opið til kl. 20:00 í að minnsta kosti nokkrar vikur í viðbót. Þá er um að gera að mæta rétt klædd með nesti til að hita upp í haust- og vetrarblíðunni.

Mynd: Eyþór Árnason

Markmiðið með stofnun Húsdýragarðsins var að kynna borgarbúum og öðrum gestum íslensku húsdýrin, færa þá nær íslenskum búskaparháttum og efla tengsl á milli manna og dýra. Fræðsludeild hefur verið starfandi innan garðsins frá upphafi og boðið upp á námskeið fyrir leik- og grunnskóla sem ýmist fara fram í leiðsagnarformi eða nemendur fá að upplifa á eigin skinni.

Mynd: Eyþór Árnason

Fá að handleika skordýr og skoða afríska risafætlu

„Þótt íslensku dýrin séu í forgrunni í fræðslustarfinu njóta framandi dýr garðsins æ meiri vinsælda. Hugrakkir krakkar er eitt vinsælasta námskeið fræðsludeildarinnar en þar eru framandi dýr garðsins í aðalhlutverki. Hugrakkir leikskólanemendur koma með kennurum sínum í heimsókn og kynnast skriðdýrum, froskdýrum og skordýrum. Þau allra hugrökkustu fá að handfjatla nokkur skordýr en þar leika stórskemmtilegir förustafir lykilhlutverk. Förustafir er ættbálkur fremur stórra ílangra skordýra sem sum líkjast laufblöðum en önnur trjágreinum. Þeir stærstu sem finnast í heiminum eru ríflega hálfur metri á lengd en þeir stærstu í garðinum eru ekki lengri en nemur lófastærð fullorðins einstaklings. En það eru ekki bara förustafir sem hugrökkum krökkum gefst tækifæri á að kynnast því afríska risafætlan fær líka að skína í hlutverki sínu. Hún getur orðið allt að 38 sentimetra löng og telst til ættbálks þúsundfætla. Það verður að fylgja sögunni að nemendur leikskóla eru oftar en ekki skrefinu framar þegar kemur að hugrekki í þessum heimsóknum á meðan kennararnir halda sig í hæfilegri fjarlægð,“ segir Unnur.

Nánari upplýsingar um þau námskeið sem í boði eru fyrir leik- og grunnskólanemendur eru á heimasíðu garðsins www.mu.is.

Opnunartími Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er frá 10–17, nema á miðvikudögum er opið til 20:00.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7