Það er alltaf mikilvægt að fara vel með líkamann og sérstaklega þegar um langa setu er að ræða. Hjá Pennanum fást ýmsar vörur sem gera leikjaspilunina bæði ánægjulegri og heilsusamlegri fyrir líkamann. Sandberg er frumkvöðull í framleiðslu leikjastóla sem passa upp á bakið og hafa stólarnir og aðrar vörur frá þeim fengið frábærar viðtökur hér heima.
Láttu fara vel um þig í Voodoo leikjastólnum frá Sandberg og hafðu fullkomna stjórn á leiknum þegar spilað er. Stólinn er hannaður með afrísku grímurnar í huga, sem sagðar eru gefa kraft, styrk og ósýnileika. Hámarks þægindi, þökk sé mörgum stillingarmöguleikum í sæti, baki og á örmum. Bak og sæti eru klædd PU-leðri en í miðju stólsins er efni sem tryggir öndun óháð því hversu lengi er setið í honum og spilað. Stóllinn er byggður úr sterku gæðaefni sem tryggir langa endingu.
Fullkomnaðu leikjaaðstöðuna með flottri stólamottu frá Sandberg. Mottan kemur í veg fyrir að stólinn rispi gólfið á meðan spilað er auk þess sem hún kemur í veg fyrir óhljóð þegar stólnum er rennt eftir gólfinu.
Leikjamottan er búin til úr sterku gervigúmmíi og er með saumuðum köntum sem tryggir betri endingu. Mottan hentar best á hörðu gólfi. Stærð 100 x 100 x 0,3 sentimetrar.
Uppfærðu tölvuleikjaspilið með Sandberg leikjaborðinu. Borðið er 1,2 metrar á breidd sem tryggir þér nóg pláss. Að auki hefur þú frelsi til þess að hreyfa þig á meðan spilað er. Á sama tíma er borðið af stærð sem passar í flest herbergi. Sterkir málmfætur og massíf MDF-plata mynda saman stöðugar undirstöður þar sem hægt er að fela snúrur og framlengingar. Flott LED-lýsing í báðum endum borðsins sem kemur þér í rétta leikjastuðið! Borðið er sérsniðið í stærðinni 120 x 64 x 77 sentimetrar.
Vörurnar eru fáanlegar í vefverslun Pennans penninn.is og verslun Pennans í Smáralind.