fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Kynning

Gamestöðin: Langbesta úrvalið af tölvuleikjum á Íslandi

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 20. júlí 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamestöðin opnaði dyr sínar fyrir tölvunördum landsins í Skeifunni árið 2008 og hefur alla tíð síðan verið ein ástsælasta tölvuleikjaverslun Íslands. Gamestöðin er nú staðsett í Kringlunni og hefur flutt þar í enn betra og stærra húsnæði. „Sala á tölvuleikjum er sífellt að aukast enda eykst áhuginn alltaf með hverju árinu. Svo eru spennandi tímar framundan í tölvuleikjageiranum þar sem rafíþróttirnar eru nú loks orðnar viðurkenndur hluti af íþróttahreyfingunni,“ segir Hallbjörn Sigurður Guðjónsson hjá Gamestöðinni.

Nýir og spennandi tímar

Það er margt spennandi framundan í tölvuleikjaheiminum. Nýjar kynslóðir leikjavéla eru væntanlegar á næsta ári og fjöldinn allur af nýjum leikjum. „Ég er persónulega mjög spenntur fyrir nýja Hideo Kojima leiknum sem er að koma út á næstunni fyrir Playstation 4.

Leikurinn nefnist Death Stranding og munu Mads Mikkelsen og Norman Reedus úr Walking Dead leika stór hlutverk í leiknum. Einnig kemur nýr FIFA leikur út í september og svo er nýi Star Wars leikurinn, Jedi: Fallen Order, væntanlegur.“

Besta úrval á Íslandi

Gamestöðin er þekkt fyrir frábæra þjónustu og ótrúlegt úrval af leikjum fyrir bæði nýjar og eldri leikjatölvur. „Ég hika ekki við að fullyrða að við séum með besta úrvalið í tölvuleikjum á Íslandi. Við erum dugleg að vera með nýjustu leikina fyrir nýjustu tölvurnar en leggjum einnig metnað í að bjóða upp á úrval af eldri leikjum.

Þá erum við t.d. með leiki alveg frá nýjustu gerðinni af Nintendo Switch niður í Playstation1. Við kaupum líka eldri tölvuleiki fyrir inneignarnótu og seljum notaða leiki á hagstæðu verði. Þannig að eldri leikir, sem eru jafnvel ófáanlegir á nýjustu vélarnar, eru oft til á þær eldri.“

Gaman að finna hinn fullkomna tölvuleik

Gamestöðin er ekki bara fyrir þá sem spila tölvuleiki. „Það koma margir hingað inn að leita að gjöfum fyrir vini sína eða skyldmenni sem spila tölvuleiki. Oft hefur þetta fólk aldrei snert Playstation tölvu og þá er um að gera að tala við starfsmann. Við erum öll miklir tölvuleikjaáhugamenn og getum auðveldlega ráðlagt í svona tilfellum. Þetta er pínu eins og að koma inn í bókabúð og ætla að kaupa bók handa vini sínum sem er bókmenntafræðingur. Fólkið í bókabúðinni er alltaf meira en til í að hjálpa. Okkur finnst að sama skapi mjög skemmtilegt að reyna að finna hinn fullkomna tölvuleik fyrir vininn,“ segir Hallbjörn að lokum og býður alla velkomna í Gamestöðina.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu búðarinnar gamestodin.is

Kringlunni 4–12, 103 Reykjavík

Sími: 588-4263

Fylgstu með á Facebook: Gamestöðin

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7