fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Kynning

Glímufélagið Ármann: „Við viljum byggja rafíþróttadeildina frá grunni“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 19. júlí 2019 18:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Glímufélagið Ármann er elsta íþróttafélag landsins og síður en svo bara glímufélag þótt nafnið bendi til annars. „Þetta er stórt og rótgróið hverfafélag með fjölbreyttar íþróttir á sínum snærum. Við erum svolítið frábrugðin mörgum öðrum þar sem áhersla okkar er ekki aðallega á boltaíþróttirnar, þó svo að við séum líka með eina af stærstu körfuknattleiksdeildum landsins, heldur viljum við bjóða upp á fjölbreytt og uppbyggilegt íþróttastarf fyrir alla aldurshópa,“ segir Jón Þór Ólason, framkvæmdastjóri Glímufélagsins Ármanns.

Mynd: Eyþór Árnason

Nýjasta deildin er rafíþróttadeild

Nýjasta íþróttadeildin hjá Ármanni er rafíþróttadeildin. Glímufélagið Ármann, Rafíþróttaskólinn og G-Zero Gaming hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á Rafíþróttadeild Ármanns. „Fyrst um sinn viljum við einblína á barna- og unglingastarfið og munum bjóða upp á námskeið fyrir börn og unglinga innan deildarinnar strax í haust. Þá erum við í nánu samstarfi við Rafíþróttaskólann og fáum mjög hæfileikaríka kennara þaðan til þess að halda utan um námskeiðin hjá okkur.“

Heilbrigðir spilahættir, samvinna, liðsheild og sjálfsagi

Markmið Rafíþróttaskólans er að þróa aðferðafræði og æfingar í rafíþróttum fyrir barna- og unglingastarf (6–16 ára) með ríka áherslu á þau gildi sem íslenska íþróttaumhverfið hefur verið byggt á síðustu áratugi. Áhersla er lögð á að allir geti fundið sér eitthvað við sitt hæfi sem nýtist þeim áfram í lífinu. Lögð er áhersla á heilbrigða spilahætti, liðsheild, samvinnu, samskipti og jákvætt umhverfi iðkandans. „Við vildum fara þessa leið, þ.e. að byggja upp deildina frá grunni með langtímaplan að markmiði, enda trúum við því að það sé heilmikil framtíð í rafíþróttum í dag. Með þessu viljum við skapa félagslegt og stuðningsríkt umhverfi fyrir börn, ungmenni og forráðamenn. Það er okkar trú að markvissar æfingar í réttu umhverfi hafi jákvæð áhrif á börn og ungmenni. Iðkendur æfa saman í hópum í eigin persónu og æfa þar samskipti, samvinnu, samkennd, sjálfsaga og fleira, á sama tíma og þeir fá að leggja stund á áhugamál sitt.“

Mynd: Eyþór Árnason

Fortnite námskeið í haust

Boðið verður upp á námskeið með áherslu á Fortnite fyrir 10–12 og 12–14 ára hjá Ármanni í haust. Námskeiðin verða haldin í G-Zero, Grensásvegi 16, 108 Reykjavík. „Við ákváðum að byrja á að bjóða upp á námskeið í Fortnite frekar en öðrum vinsælum tölvuleikjum innan rafíþróttanna þar sem hann snýst minna um skotleikjaupplifun en margir aðrir vinsælir tölvuleikir sem spilaðir eru í rafíþróttum í dag. Fortnite er skemmtilegur og notendavænn tölvuleikur sem hentar bæði börnum og fullorðnum. Við höldum svo möguleikanum opnum á því að fjölga námskeiðum og bæta við leikjum fyrir breiðara aldursbil.“

Mynd: Eyþór Árnason

Kynningarfundir í ágúst

Kynningarfundir um Rafíþróttadeild Ármanns og þau námskeið sem boðið verður upp á í haust verða haldnir sunnudaginn 25. ágúst, kl. 14.00 og þriðjudaginn 27. ágúst 2019, kl. 17.00 á G-Zero Gaming við Grensásveg 16. „Þá viljum við kynna starfið sérstaklega fyrir foreldrum barna og unglinga sem hafa áhuga á tölvuleikjum, en að sjálfsögðu eru allir áhugasamir velkomnir,“ segir Jón Þór.

 

Skráningu í námskeið og upplýsingar má nálgast á vefsíðunni armenningar.felog.is.

Einnig má fá nánari upplýsingar með því að senda netpóst á Eið, íþróttastjóra Ármanns: eidur@armenningar.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7