fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Café Adesso: Eitt vinsælasta kaffihús landsins lækkar verðið

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 15. júní 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cafe Adesso í Smáralind hefur um árabil verið geysilega vinsælt kaffihús og veitingastaður en staðurinn var opnaður 7. apríl 2002. Cafe Adesso er vel sóttur af viðskiptavinum Smáralindar en auk þess venur stór hópur fastagesta komur sínar á staðinn, meðal annars fólk sem vinnur í nágrenninu.

Adesso
Ljúffengt crepes.

Cafe Adesso býður upp á hið rómaða og bragðmikla Piazza doro-kaffi. Piazza doro inniheldur Arabica kaffibaunir frá Ástralíu og er leiðandi kaffiframleiðandi þar í landi.

„Með kaffinu mæli ég með sneið af franskri súkkulaðiköku með rjóma. Mikið úrval er af alls konar gómsætum kökum. Einnig eru smurbrauð með roastbeef, laxi, hangikjöti og fleiru gerð alla daga. Börnin geta valið sér crepes eða þá panini, já eða bara kleinuhring,“ segir Elís Árnason, eigandi Adesso.

Fjölbreytt úrval af gómsætum mat og hádegistilboð alla daga

Sem fyrr segir er Cafe Adesso í senn kaffihús og veitingastaður. Geysilegt úrval af tertum og smástykkjum er í boði alla daga en matseðla má skoða á heimasíðu staðarins, adesso.is. Meðal annars eru crepes hádegistilboð alla virka daga milli kl. 11.30 og 14.00 á 1.890 krónur, súpa dagsins með brauði á 1.190 krónur, svo má ekki gleyma Mexikókjúklingasalatinu okkar á 1.890 krónur alla daga.

Adesso
Girnilegt Mexíkósalat.

Enn meiri verðlækkun

Adesso er nýbúið að lækka verðið á völdum réttum og meðal annars hefur verðið á crepes réttunum okkar á matseðli, lækkað úr 2.390 niður í 1.990 kr. Einnig lækkar verðið á öllum kökusneiðunum okkar niður í 990 kr. Rjóminn fylgir þá með. „Svo er hægt að fá tilboð á kaffibolla og eðal franskri súkkulaðiköku á eingöngu 1.290 kr. en frönsku súkkulaðikökuna baka ég sjálfur á staðnum,“ segir Elís.

Megináherslan er lögð á fjölbreytni í starfsemi Cafe Adesso þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  Að ógleymdu kaffinu sem nýtur ómældra vinsælda.

Nánari upplýsingar má nálgast á adesso.is
Facebook: Adesso Smáralind
Cafe Adesso er opið mánudaga–miðvikudaga frá kl. 11.00 til 19.00, fimmtudaga frá 11.00 til 21.00, föstudaga og laugardaga frá kl. 11.00 til 19.00 og sunnudaga frá kl. 12.00 til 18.00.

Adesso

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum