fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

„Læknirinn sagði að ég þyrfti miklu meira D-vítamín“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 27. maí 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DLúx 3000 munnúðinn hækkaði D-vítamíngildin hjá Rakel Ósk á methraða og kom heilsunni í lag. Einungis 4 vikur þurfti til að ná upp í vel ásættanleg gildi og það með bara einum úða á dag.

D-vítamín er nauðsynlegt fyrir heilbrigt taugakerfi, heila, hjarta og æðakerfi. Það er nauðsynlegt fyrir húðina, beinin, sjónina og heyrnina svo nokkuð sé nefnt og það ver okkur fyrir alvarlegum sjúkdómum. Skortur D-vítamíns þegar kemur á fullorðinsár getur valdið beinþynningu, beinmeyru, vöðvarýrnun og tannskemmdum. Rannsóknir gefa einnig sterkt til kynna að D-vítamín sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma en vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti.

 

Magaverkjaköst vegna skorts

„Rakel Ósk er hress og kát 10 ára fimleikastelpa sem vanalega er heilsuhraust. Í nóvember 2018 byrjaði hún svo að veikjast en það lýsti sér fyrst og fremst í magaverkjaköstum þar sem versta kastið varði í 3 vikur. Hún fór til meltingarsérfræðings sem tók hana í alls kyns rannsóknir og það eina sem kom út úr því var að hún var langt undir mörkum í D-vítamíni. Gildið var aðeins 25 nmól/l en eðlilegt er að vera á bilinu 50 til 150 nmól/l,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan.

Rakel Ósk þurfti að taka sterkan D-vítamínskammt samkvæmt læknisráði til að ná upp gildunum og mælti læknirinn með 3000 einingum á dag.

„Mér var mjög illt í maganum og læknirinn sagði mér að ég þyrfti að fá miklu meira D vítamín. DLúx úðinn er ekki vondur á bragðið og ekki sterkur og létt að taka hann, bara eitt sprey á dag undir tunguna. Mér líður miklu betur eftir að ég byrjaði að taka úðann þannig að ég mæli með honum“ Rakel Ósk 10 ára

 

Gildin ruku upp á 4 vikum

„Rakel Ósk þurfti því að taka sterkan D-vítamínskammt samkvæmt læknisráði til að ná upp gildunum og mælti læknirinn með 3000 einingum á dag. Rakel Ósk er eins og mörg börn (og jafnvel fullorðnir) með að finnast vont að gleypa töflur þannig að þeim mæðgum var bent á DLúx 3000 munnúðan í apóteki og fannst Rakel ekkert mál að úða upp í sig einu sinni á dag. Fjórum vikum síðar fór hún svo í blóðprufu og læknirinn ætlaði varla að trúa sínum eigin augum. Gildin voru komin í 98 nmól/l og taldi hann þetta örugglega vera met í bætingu og hvatti til þess að passa áfram upp á inntöku til að viðhalda gildunum. Rakel er öll önnur í dag, er sjálfri sér lík og ekki fengið magaverk aftur.“

 

D-vítamínskortur á norð- lægum slóðum

„Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru í D-vítamín skorti. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð og/eða lifa á norðlægum slóðum séu oftar í skorti en aðrir. Í framhaldi af þessu var skoðað hvað það þyrfti mikið magn í daglegri inntöku af D-vítamíni til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust í skorti. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði til að ná ásættanlegum gildum en hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamín skort er að ræða, dugir ekki að taka bara ráðlagðan dagsskammt, enda eru eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau.“

 

Hvar fáum við D vítamín?

„Þetta vítamín er ekki eins og önnur vítamín sem getum fengið úr fjölbreyttri fæðu en aðeins um 10% af D-vítamíni kemur úr matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta D-vítamíns en það verður til í líkama okkar vegna áhrifa UVB geisla sólarinnar á húðina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því getur verið erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn nema rétt yfir hásumarið, um hádegið þegar sól er hæst á lofti og þá má ekki nota sólarvörn. Gott ráð er að leyfa sólinn að skína á líkamann í ca 20 mínútur án varnar en þannig er vænn skammtur af D-vítamíni tryggður. Landlæknisembættið hvetur fólk til þess að taka D-vítamín sérstaklega á formi bætiefna því eins og áður kom fram er það okkur lífsins ómögulegt að fá það úr fæðunni eða frá sólinni nema í takmörkuðu mæli,“ segir Hrönn.

 

Af hverju DLúx í úðaformi?

  • Munnúði tryggir hraða og mikla upptöku því vítamínið seytlar gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina.
  • Mörgum finnst erfitt að taka inn töflur og svo getur meltingin verið undir álagi eða ekki alveg í lagi af ýmsum ástæðum en með munnspreyinu förum við framhjá meltingarkerfinu.
  • DLúx hentar grænmetisætum og sykursjúkum sem og þeim sem eru á glúteinlausu fæði.
DLúx munnsprey tryggir hámarks upptöku.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum