fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
FókusKynning

Ólust upp á tuðrunum

Kynning

Stórskemmtilegar fjörferðir með Ribsafari á Þjóðhátíð

Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 4. ágúst 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ribsafari var stofnað fyrir sex árum og hefur heldur betur undið upp á sig undanfarin ár. „Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og einstakt að sjá eyjarnar frá þessu sjónarhorni. Við ólumst náttúrlega flest upp á tuðrum eða slöngubátum á fartinu í kringum eyjarnar og það er einstaklega gaman að geta gefið öðrum tækifæri á að njóta eyjanna frá sjó, eins og við höfum sjálf gert frá blautu barnsbeini. Slöngubátarnir sem við erum að nota eru einnig töluvert stærri og taka fleiri farþega,“ segir Laila Sæunn Pétursdóttir frá Ribsafari.

Fjörferðir á Þjóðhátíð

Nú er spáin afar hagstæð Eyjabúum yfir verslunarmannahelgina og því er um að gera að skella sér í stuttar ferðir með þeim aðilum sem bjóða upp á slíkt í Vestmannaeyjum. Ribsafari er þar enginn eftirbátur og býður upp á skemmtisiglingar um eyjarnar. „Við erum með alveg stórskemmtilegar Fjörferðir nú yfir verslunarmannahelgina. Við erum með tvo báta og ferðirnar byrja klukkan eitt á föstudeginum. Ferðir eru farnar allan daginn, frameftir degi, og alla helgina. Þetta er svona fyrstur kemur, fyrstur fær að fara út. Þá mæta þátttakendur bara niður á bryggju, fá galla og vesti.

Svo er haldið í tuðruna, tólf saman, þar sem farið er í slöngubátaferð í kringum eyjarnar. Leiðsögumennirnir eru alla jafna í roknastuði að reita af sér brandara og fróðleiksmola. Svo er óvæntur glaðningur í lokin. Farþegarnir mæta í land með gleðibros á vör og næsti hópur fer um borð,“ segir Laila.

Leiðsögumennirnir eru alltaf hressir
Leiðsögumennirnir eru alltaf hressir

Skemmtisigling aftur til Landeyjahafnar: Besta þynnkumeðalið

„Fjörferðirnar eru alveg gífurlega vinsælar ferðir enda stórskemmtilegar og mikið fjör. Síðustu ár hefur verið alveg heilmikið að gera hjá okkur og við erum sjálf um borð í bátum nær alla verslunarmannahelgina. Svo er staðreynd að það er fátt sem læknar slæma þynnku hraðar en slöngubátaferð. Þetta þekkjum við sjálf og eftir slíka ferð er maður alveg endurnærður,“ segir Laila.

Ribsafari býður einnig upp á stórsniðuga nýjung fyrir þjóðhátíðargesti á mánudeginum 7. ágúst. Um er að ræða skemmtisiglingu þar sem farið er með dalgesti frá Eyjum til Landeyjahafnar. Þetta er óneitanlega skemmtilegri og hraðfarnari valkostur en Herjólfsferð þar sem þarna verður mikið stuð. En þessi farkostur hentar að sjálfsögðu ekki þeim sem þurfa að ferja hjólhýsi eða stærri farangur á milli hafna. Þessa ferð verður að panta fyrirfram á vefsíðu Ribsafari; ribsafari.is og ferðum verður bætt við eftir þörfum.

Húsnæði Ribsafari
Húsnæði Ribsafari

Fjörferðir Ribsafari eru farnar frá Básaskersbryggju 8 frá föstudegi til sunnudags.
Skemmtisigling til Landeyjahafnar eru farnar frá sama stað á mánudeginum.
Sími: 661-1810 (Símatími yfir helgina frá 12 til 19).
Email: info@ribsafari.is
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Ribsafari; ribsafari.is og á Facebook-síðunni.
Ribsafari er svo á Snapchat.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea