fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
FókusKynning

Fjölskyldufyrirtæki í örum vexti: Búslóðaflutningar flytja allt

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 15. júlí 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Búslóðaflutningar ehf. er sannkallað fjölskyldufyrirtæki enda rekið af systkinunum Söru Sigurvinsdóttur og Axel Þorsteinssyni. Nýlega bættist litla systir þeirra inn í hópinn, Edda Sigurvinsdóttir, en hún er meiraprófsbílstjóri. Einnig er faðir þeirra, Ómar, þeim til halds og trausts en hann hefur áralanga reynslu í sendibílaakstrinum. „Við leggjum upp úr persónulegri og skjótri þjónustu,“ segir Sara og bætir við að bílstjórar sinni útköllum hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu og skutli hvert á land sem er, alveg heim að dyrum.

Ævintýrið byrjaði í nóvember 2015 með grænum tíu tonna sendiferðabíl. Í desember í fyrra bættist svo við tólf rúmmetra Ford Transit sem er mjög hentugur í alls kyns dreifingu og minni flutninga. Fyrirtækið er í stöðugum uppvexti og nú í apríl stækkaði flotinn enn og aftur. Um er að ræða tólf tonna Benz Atego með kælivél og er hann tilvalinn í stórar búslóðir og fyrirtækjaflutninga. Bílafloti Búslóðaflutninga ehf. er staðsettur í Hraunbæ í Reykjavík og flytur fyrirtækið hvert á land sem er. „Það hefur verið mjög mikið að gera hjá okkur í vor og sumar en með haustinu hefur hægt aðeins á, enda kemur þetta í bylgjum. Við erum þó starfandi allt árið og óski viðskiptavinur eftir því, þá flytjum við á nóttunni. Við erum náttúrlega þjónustufyrirtæki,“ segir Sara. Þrátt fyrir nafnið sér Búslóðaflutningar ehf. um alhliða flutninga svo sem búslóðaflutninga, píanóflutninga og fyrirtækjaflutninga. „Ef það kemst fyrir í bílunum hjá okkur þá flytjum við það,“ segir Sara.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Búslóðaflutningar ehf. er staðsett í Hraunbæ 182 í Reykjavík og með lögheimili í Laxatungu 23, Mosfellsbæ.
Viðskiptavinir geta pantað þjónustu fyrirtækisins með því að hafa samband í síma 893-5888 eða með því að senda vefpóst á buslodaflutningar@simnet.is. Nánari upplýsingar má svo nálgast á Facebook-síðu Búslóðaflutninga ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea