Tölvur og gögn ehf. sér um tæknimálin fyrir þig
Tölvur og gögn ehf. er rótgróið fyrirtæki í Mjóddinni. Fyrirtækið veitir faglega þjónustu og persónulega ráðgjöf varðandi heildarlausnir í tölvu- og tæknimálum einstaklinga, minni og meðalstórra fyrirtækja. „Við erum meðal annars með alhliða netlausnir fyrir fyrirtæki og heimili, hvort sem um er að ræða kapalkerfi eða háþróuð þráðlaus netkerfi,“ segir Ævar. Einnig sér fyrirtækið um vefsíðugerð, hýsingu, innri vefi, auglýsingaborða og grafíska vinnslu ásamt uppsetningu og umsjón samskiptamiðla, Facebook og Twitter. Sú þjónusta er nefnd SpiderWeb (SpiderWeb.is) og hentar öllum gerðum fyrirtækja og stofnana, stórum sem smáum. „Við leggjum mikið upp úr góðum samskiptum og vönduðum vinnubrögðum, þar sem traust þjónusta og gæði eru í fyrirrúmi. Mikil menntun, reynsla og þekking er til staðar í fyrirtækinu og við leggjum okkur alltaf fram við að leysa málin fljótt og vel,“ segir Ævar.
Uppsetning prentara á tölvunetum getur verið flókin og oft aðeins á færi þeirra sem kunna vel til verka. Það kannast líklegast margir við það að sótbölva prentaranum þegar upp kemur villumelding og skjalið einfaldlega vill ekki prentast. „Við hjá Tölvur og gögn ehf. höfum séð um uppsetningu á prenturum, plotterum og öðrum jaðartækjum til fjölda ára hjá hinum ýmsu fyrirtækjum,“ segir Ævar. Tölvur og gögn ehf. selur einnig, þjónustar og hefur umsjón með Office 365. „Við erum vottað skýjaþjónustufyrirtæki hjá Microsoft, Office 365 Small Business MCP vottaðir. Seljum einnig öll stýrikerfi og annan hugbúnað frá Microsoft. Einnig sjáum við um uppsetningu vírusvarnaforrita, vírushreinsun og umsjón með því ásamt uppsetningu og lagfæringu stýrikerfa bæði fyrir PC- og Mac-tölvur. Við gerum okkur grein fyrir því að öll þessi tækni þurfa að virka vel og við sjáum til þess að svo sé,“ segir Ævar. Tölvur og gögn ehf. hefur til margra ára verið samstarfsaðili Opinna kerfa og fleiri fyrirtækja og boðið tölvubúnað í miklu úrvali og á góðu verði. „Fyrirtæki geta fengið tilboð í tölvubúnað, tóner og aðra rekstrarvöru hjá okkur ásamt ráðgjöf um val á búnaði.“ Þar með er starfseminni ekki lokið því fyrirtækið býður einnig upp á kennslu í margmiðlun, meðhöndlun mynda, gagnameðhöndlun o.fl. „Einnig komum við á staðinn og kennum þér á þína eigin tölvu. Kennslan er sérstaklega sniðin að óskum viðskiptavinarins og kennt er á þeim hraða sem hentar honum,“ segir Ævar.
Tölvur og gögn ehf. er með fjölþætta starfsemi þegar kemur að tölvubúnaði fyrirtækja og einstaklinga og eins og nafnið gefur til kynna, þá sér það einnig um afritun á gögnum. „Afritun er afar mikilvæg og ekki síst í dag, þar sem upplýsingar og stafræn gögn eru oft það verðmætasta sem fyrirtæki og einstaklingar eiga. Heimili þurfa einnig að hugsa fyrir afritun á ljósmyndum fjölskyldunnar þar sem geymd eru ómetanleg augnablik. Við útvegum búnað eða notum skýjalausnir og setjum upp afritun á hagkvæman og einfaldan máta og bjóðum upp á sérsniðnar lausnir sem henta þörfum hvers og eins,“ segir Ævar. Fari svo að gögn týnist af einhverjum ástæðum þá sér fyrirtækið einnig um að endurheimta þau. Tölvur og gögn ehf. hefur lengi verið í gagnabjörgun fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. „Björgun gagna er gífurlega nauðsynleg í nútímanum þar sem verðmæt gögn eiga sífellt á hættu á að tapast. Við erum með gríðarlega reynslu í þeim málum og tryggjum vönduð og örugg vinnubrögð. Við höfum verið samstarfsaðili við Ontrack/ibas til fjölda ára og hafa þeir reynst okkur afar vel,“ segir Ævar. Þar með er gagnaþjónusta fyrirtækisins ekki upptalin því Tölvur og gögn ehf. sér einnig um að eyða gögnum af stafrænum miðlum fyrir stofnanir og fyrirtæki, sem vinna með viðkvæm gögn. Gögnin eru þá þurrkuð út samkvæmt alþjóðlegum staðli, þannig að ekki er hægt að finna þau aftur, jafnvel ekki með fullkomnustu tækni í gagnabjörgun.
Tölvur og gögn ehf. býður upp á þjónustu yfir internetið, hvort sem er við fyrirtæki eða heimili. „Þá tengjumst við tölvum og netþjónum í gegnum internetið og framkvæmum eftirlit og viðgerðir, án þess að senda mann á staðinn. Þetta hentar sérstaklega vel fyrir þá sem búa afskekkt eða eiga erfitt með að nálgast þjónustu okkar á annan hátt,“ segir Ævar.
„Við höfum nú aðskilið starfsemi okkar að hluta, þannig að tækniþjónustan er sér og vefsíðugerðin og hýsingin sér. Þetta er samt sem áður á sama stað í Mjóddinni enda er þar gott að vera. Vefsíðugerðin og hýsingin gengur undir nafninu SpiderWeb og er að stærstum hluta í höndum Jakobs, samstarfsaðila míns. Hann sér meðal annars um vefsíðugerð, innri vefi, uppsetningu, útlit, auglýsingaborða og myndvinnslu. Við sjáum einnig um vefsíður er tengjast Microsoft Office 365 og Azure, innri vefsíðugerð fyrirtækja. Nú er einnig mjög vinsælt að nota Google AdWords og leitarvélabestun til að koma vefsíðum á framfæri og við aðstoðum að sjálfsögðu við að setja það upp líka,“ segir Ævar.
Tölvur og gögn ehf. og SpiderWeb, Mjóddinni, Þarabakka 3, 2.h., 109 Reykjavík
Sími: 696-3436
Tölvup: togg@togg.is
Tölvup: vefur@spiderweb.is
Nánari upplýsingar og tilboð má nálgast á vefsíðum fyrirtækisins, togg.is, spiderweb.is og á Facebook undir nöfnunum Tölvur og gögn og SpiderWeb vefsíðugerð.